Lög og reglur
Geislavarnir ríkisins hafa safnað saman hlekkjum í lög og reglugerðir sem varða stofnunina á eina síðu.
Athugið að Geislavarnir ríkisins gefa út leiðbeiningar varðandi nánari útfærslu á reglugerðum. Leiðbeiningar eru aðgengilegar undir efni fyrir fagfólk.
1290/2015 Reglugerð um hámörk geislunar starfsmanna og almennings vegna starfsemi þar sem notuð er geislun
1299/2015 Reglugerð um geislavarnir vegna notkunar geislatækja sem gefa frá sér jónandi geislun.
Geislavarnir ríkisins annast reglubundið eftirlit með notkun geislavirkra efna og geislatækja og skal eftirlitið taka mið af þeirri áhættu sem notkuninni fylgir.
Notkun geislatækja og geislavirkra efna er leyfisháð og eru leyfishafar flokkaðir eftir umfangi og eðli notkunarinnar og ætlaðri áhættu vegna notkunar gagnvart starfsmönnum, almenningi og sjúklingum. Leyfishafi flokkast í efsta flokk sem við á um starfsemina og að jafnaði fer eftirlit fram með öllum þáttum notkunar á hverri starfsstöð leyfishafa í einu.
Eftirlitsflokkur 1 - eftirlit á 2 ára fresti
Umfangsmikil notkun við læknisfræðilega myndgreiningu (>5000 rannsóknir á ári)
Þar sem fram fer framleiðsla geislavirkra efna
Þar sem notuð eru tölvusneiðmyndatæki (önnur en CBCT)
Rannsóknarstofur með opnar geislalindir í flokki A eða B (sbr. GR 04:02)
Þar sem fram fer geislameðferð
Þar sem notaðar eru lokaðar geislalindir í hættuflokki 1 og 2 (sbr. GR 20:02)
Eftirlitsflokkur 2 - eftirlit á 3 ára fresti
Mikil notkun við læknisfræðilega myndgreiningu (1000-5000 ranns. / ári)
Þar sem notuð eru sérhæfð geislatæki við tannlækningar (t.d. CBCT)
Þar sem notuð eru sérhæfð geislatæki við dýralækningar
Geislatæki í opinni aðstöðu við öryggisgæslu eða í iðnaði (gámaskoðun, NDT)
Rannsóknarstofur með opnar geislalindir í flokki C (sbr. GR 04:02)
Þar sem notaðar eru lokaðar geislalindir í hættuflokki 3 (sbr. GR 20:02)
Eftirlitsflokkur 3 - eftirlit á 4 ára fresti
Læknisfræðileg myndgreining þar sem rannsóknir eru færri en 1000 á ári
Almenn notkun geislatækja við dýralækningar
Þar sem notaðar eru lokaðar geislalindir í hættuflokki 4
Eftirlitsflokkur 4 - eftirlit á 5 ára fresti
Þar sem skermuð geislatæki eða efnagreiningartæki með lágorkugeislun eru notuð við öryggisgæslu eða í iðnaði
Almenn notkun geislatækja við tannlækningar
Þar sem notaðar eru lokaðar geislalindir í hættuflokki 5 (sbr. GR 20:02)
Tímabundið aukið eftirlit
Geislavarnir ríkisins geta aukið tíðni eftirlits tímabundið, með hluta eða allri starfsemi leyfishafa eftir því sem ástæða þykir til. Þetta getur til dæmis átt við um:
búnað sem sýnt er að vegi þungt í geislaálagi þjóðarinnar
geislavirk efni sem gætu valdið auknu geislaálagi á almenning
breytingar á geislunaraðstöðu eða notkunaraðstöðu geislavirkra efna
ef atvik verða eða kvartanir berast
ef ekki er brugðist við kröfum um úrbætur eftir reglulegt eftirlit
Reglubundið eftirlit getur farið fram án þess að farið sé á staðinn, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem stofnunin setur.
Lög og reglugerðir
66. gr. reglugerðar um geislavarnir vegna notkunar geislatækja sem gefa frá sér jónandi geislun (1299/2015)
1. mgr. 17. gr. laga nr. 44/2002 um geislavarnar