Fara beint í efnið

4. janúar 2023

Möguleg áhrif COVID-19 útbreiðslu í Kína á faraldsfræðilegt ástand í Evrópu

Viðbrögð kínverskra stjórnvalda við COVID-19 faraldrinum 2020–2022 einkenndust af öflugum hindrunum gegn innkomu nýrra afbrigða, með minni áherslu á hlutverk örvunarbólusetningar og nýstárlegra bóluefna en í Evrópu og Bandaríkjunum.

Sóttvarnalæknir - logo

Breytingar á þeim aðgerðum á seinni hluta árs 2022 leiddi til stórrar bylgju COVID-19 smita í landinu. Áreiðanlegar upplýsingar um fjölda COVID-19 tilfella, innlagnir á sjúkrahús og dauðsföll í Kína eru af skornum skammti. Þó er búist við miklum fjölda COVID-19 sýkinga þar og aukins álags á heilbrigðiskerfið á næstu vikum vegna lítils ónæmis íbúanna og tilslökunar á samkomutakmörkunum sem standa fyrir dyrum.

Undanfarnar vikur hefur Kína sent upplýsingar um afbrigði sem þar finnast í alþjóðlegan gagnabanka GISAID í meiri mæli en áður. Ekkert nýstárlegt afbrigði hefur komið fram í þessum gögnum, heldur ýmis ómíkron afbrigði sem eru nú þegar í umferð innan Evrópu og eru sem slík ekki ógn fyrir frekari veikindi í Evrópu að mati Sóttvarnastofnunar Evrópu (ECDC). Að auki hafa íbúar í Evrópu innan Evrópusambandsins (ESB) og evrópska efnahagssvæðisins (EES) tiltölulega háa tíðni fyrri sýkinga og bólusetninga, sem veitir vörn gegn alvarlegum veikindum, jafnvel þegar ný afbrigði koma fram.

ECDC hefur aukið eftirlitsstarfsemi sína og mun endurskoða áhættumat og aðlaga aðgerðir ef þörf krefur.

Sameiginleg nálgun Evrópulanda til að bregðast við COVID-19 ástandinu í Kína

Samkvæmt reglugerð ESB um alvarlega heilsuvá og för yfir landamæri, sem tók gildi 26. desember 2022, skulu aðildarríki hafa samráð sín á milli og við heilbrigðisöryggisnefnd framkvæmdastjórnar um viðbrögð við alvarlegri heilsuvá yfir landamæri, s.s. eftirliti með og viðbrögðum við nýjum afbrigðum COVID-19. Ísland er aðili að þessu samstarfi og mun taka mið af þeim tilmælum og ákvörðunum sem eru teknar á þeim vettvangi og aðlaga aðgerðir sem mælt er með að okkar aðstæðum.

Sjá fréttatilkynningu ECDC þann 3. janúar 2023, um COVID-19 stöðuna í Kína.

Sóttvarnalæknir