10. október 2024
10. október 2024
Marburg-veira greinist í Rúanda
Frá lok september hafa 58 tilfelli Marburg-veiru og 13 andlát verið tilkynnt í Rúanda. Marburg-veira hefur ekki áður greinst í Rúanda þó hún hafi greinst i öðrum Afríku-ríkjum svo sem Angóla, Kongó, Kenýa, S-Afríku og Úganda.
Marburg-veira er af ætt þráðveira (filovirus) eins og ebóla-veira en báðar veirur valda svokallaðri blæðandi veiruhitasótt. Ekkert bóluefni eða lyf er til gegn Marburg-veiru en dánartíðni af völdum sjúkdómsins er há. Heilbrigðisyfirvöld í Rúanda hafa gripið til ýmissa aðgerða.
Marburg-veira er ekki bráðsmitandi og smitast ekki frá öndunarvegi heldur með snertingu við líkamsvessa frá veikum einstakling. Áhætta fyrir almenning sem ferðast frá Evrópu til Rúanda er talin lág en meiri fyrir þá sem fara til að starfa í heilbrigðisþjónustu Rúanda ef viðeigandi sóttvörnum er ekki beitt, þar með talið rétt notkun á hlífðarbúnaði.
Þau sem hyggja á ferðalög til Rúanda eru beðin að kynna sér vel ástandið þar og fylgja ráðum þarlendra heilbrigðisyfirvalda. Þau sem koma frá Rúanda og fá sjúkdómseinkenni eftir komu heim (flensulík einkenni, háan hita, höfuð- og vöðvaverki, einkenni frá meltingarfærum) eru beðin að hafa samband við heilbrigðisþjónustu án tafar.
Sjá einnig á vef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins (ECDC):
Sóttvarnalæknir