17. mars 2026
17. mars 2026
Málþing á Alþjóðadegi hamingjunnar 2026: Tengsl samfélagsmiðla og hamingju
Föstudaginn 20. mars 2026 verður haldið málþing í Hátíðarsal Háskóla Íslands í tilefni af Alþjóðadegi hamingjunnar. Málþingið fer fram kl. 13:00–15:00 og er yfirskrift þess Tengsl samfélagsmiðla og hamingju.

Á málþinginu verður sjónum beint að því hverjar helstu áskoranir eru í stafrænum heimi nútímans og hvernig megi nýta tæknina á jákvæðan hátt til að styðja við hamingju og vellíðan. Alþjóðadagur hamingjunnar á uppruna sinn að rekja til Sameinuðu þjóðanna, sem lýstu 20. mars formlega sem degi hamingjunnar árið 2012 til að undirstrika mikilvægi hamingju og vellíðanar í lífi fólks og samfélaga.
Fundarstjóri málþingsins verður Embla Bachmann frá Riddurum kærleikans.
Meðal þeirra sem taka til máls eru Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, Sigrún Þóra Sveinsdóttir, verkefnastjóri geðræktar hjá embætti landlæknis, Haukur Brynjarsson frá Fjölmiðlanefnd og Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri félags Sameinuðu þjóðanna. Þá verða einnig pallborðsumræður undir stjórn Emblu Bachmann og að lokum verður stuð með Eddu Björgvinsdóttur.
Í erindi Sigrúnar Þóru verður meðal annars fjallað um tölur úr vöktun á hamingju Íslendinga og skýrsluna World Happiness Report, sem kemur út deginum áður.
Sama dag fer einnig fram „Gleðin í trjánum – hamingjuganga“, á vegum Reykjavíkurborgar og Grasagarðs Reykjavíkur. Gangan hefst í Fógetagarðinum og endar við Háskóla Íslands þar sem málþingið fer fram. Í göngunni verður gengið um miðborg Reykjavíkur með viðkomu við söguleg og merkileg tré, með áherslu á að njóta samverunnar, anda að sér, hlusta og fanga hamingjuna í borgarumhverfinu.
Göngunni stýrir Edda Björgvinsdóttir með aðstoð Bjarkar Þorleifsdóttur úr Grasagarði Reykjavíkur.
Dagskrá
13:00 Opnunarávarp - Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri
13:15 Tölur úr vöktun um hamingju Íslendinga og umfjöllun um World Happiness Report - Sigrún Þóra Sveinsdóttir
13:30 Erindi - Haukur Brynjarsson frá Fjölmiðlanefnd
13:55 Erindi - Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri félags Sameinuðu þjóðanna
14:10 Pallborðsumræður - Embla Bachmann stýrir umræðum
14:30 Stuð með Eddu Björgvinsdóttur
Öll hjartanlega velkomin.
Lýðheilsusvið