21. maí 2026
21. maí 2026
Jafnréttisstofa á Ísland.is
Nýr vefur Jafnréttisstofu hefur verið opnaður á Ísland.is.

Jafnréttisstofa vinnur að því að efla jafnrétti í íslensku samfélagi. Stofnunin veitir ráðgjöf, fræðslu og upplýsingar ásamt því að fylgjast með stöðu jafnréttismála og hvetja til jákvæðra breytinga.
Stafrænt Ísland óskar Jafnréttisstofu til hamingju með þennan áfanga og býður þau velkomin í Ísland.is samfélagið. Vefir opinberra aðila á Ísland.is eru nú 67 talsins en helstu kostir þess fyrir opinbera aðila er aðgangur að sameiginlegum verkfærum, innviðum og sérþekkingu. Efni vefjanna er aðgengilegt öllum notendum Ísland.is í gegnum leit og leiðakerfi og er sett upp með hliðsjón af hönnunar- og efnisstefnum sem tryggja góða og samræmda upplifun notenda.