16. október 2026
16. október 2026
Íslenskukennsla fyrir útlendinga
Umsóknarfrestur er 7. desember 2026, kl. 15:00.

Veittir eru styrkir til fræðsluaðila, fyrirtækja og stofnana er bjóða nám í íslensku sem ekki er hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.
Fræðsluaðilar sem hafa hlotið viðurkenningu til að annast framhaldsfræðslu geta sótt um, sem og fyrirtæki sem hafa gert samning við slíka fræðsluaðila um ábyrgð á kennslunni. Námskeið ber að tengja við færnistig Evrópska tungumálarammans. Alþingi ákveður fjárhæð úthlutunar í fjárlögum.
Umsóknum skal skilað rafrænt á umsóknarvef Rannís. Nánari upplýsingar um sjóðinn, úthlutunarreglur og tengil á umsókn er að finna á island.is/islenskukennsla-fyrir-utlendinga.
Upplýsingar veitir Skúli Leifsson í síma 515 5843 eða með tölvupósti á islenskukennsla.utlendinga@rannis.is.