Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Styrkir eru veittir til íslenskukennslu fyrir útlendinga sem búsettir eru hér á landi, og skráðir eru með lögheimili í Þjóðskrá. Veittir eru styrkir til fræðsluaðila, fyrirtækja og stofnana er bjóða nám í íslensku sem ekki er hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.

Rétt til að sækja um styrk eiga fræðsluaðilar sem öðlast hafa viðurkenningu mennta- og barnamálaráðuneytisins á grundvelli 7. gr. laga um framhaldsfræðslu og fyrirtæki eða stofnanir sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá. Fyrirtæki eða stofnanir, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að hafa samning við viðurkenndan framhaldsfræðsluaðila er annast kennsluna. Í samningi skal koma fram hverjir samningsaðilar eru, lýsing á inntaki þjónustunnar sem veitt er og fjárhæð sem greidd er fyrir hana. Afrit af samningi skal fylgja með umsókn fyrirtækis.

Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru hér á landi og skráðir eru með lögheimili í Þjóðskrá, tækifæri á að öðlast nauðsynlega færni í íslensku til að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar á Íslandi.  

Styrkir eru veittir til íslenskukennslu fyrir útlendinga sem búsettir eru hér á landi, og skráðir eru með lögheimili í Þjóðskrá. Veittir eru styrkir til fræðsluaðila, fyrirtækja og stofnana er bjóða nám í íslensku sem ekki er hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.

Rétt til að sækja um eiga viðurkenndir fræðsluaðilar og fyrirtæki og stofnanir sem hafa samning við viðurkennda fræðsluaðila sem annast kennsluna. 

Sækja skal um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er í desember ár hvert.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi í gegnum umsóknarkerfi Rannís. Ekki er tekið við umsóknum á öðru formi.

Innskráning í umsóknarkerfileiðbeiningar umsóknarkerfis

Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu islenskukennsla.utlendinga@rannis.is eða í síma 515 5843.

Rannís hefur umsjón með styrkjum til íslenskukennslu útlendinga fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytis.