Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Íslenskukennsla fyrir útlendinga

Leiðbeiningar vegna umsókna

Umsóknarkerfi

  • Umsókn um styrki til íslenskukennslu útlendinga skal skila í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís

  • Til að nálgast umsóknarformið þarf að tengjast umsóknarkerfi Rannís, með rafrænum skilríkjum. Ekki er nauðsynlegt að umsækjandi sé innskráður notandi í umsóknarkerfinu en það er heppilegt ef hægt er. Einstaklingur getur verið innskráður notandi í umsóknarkerfi en tilgreint annan umsækjanda í umsókn. 

  • Leiðbeiningar um innskráningu og hvernig ný umsókn er stofnuð.

Ráðleggingar til umsækjenda

  • Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel allar leiðbeiningar vegna umsókna.

  • Stofnið umsókn tímanlega í umsóknarkerfinu.

  • Ekki skila umsókn á síðasta degi.

Í umsókn skal tilgeina:

  • Upplýsingar um umsækjanda

  • Lýsingu á námskeiði

  • Fjölda námskeiða og námskeiðsstunda. Samkvæmt námskrám (grunnnám og framhald) er hver áfangi/námskeið 60 kennslustundir. Ein kennslustund er lágmark 40 mínútur.

  • Áætlaðan heildarfjölda þátttakenda (10 að lágmarki og 20 að hámarki)

  • Fjármögnun utan styrkja úr sjóðnum

  • Tengingu við Evrópska tungumálarammann

  • Námskeiðskostnað - sjá hjálparskjal hér að neðan og leiðbeiningar í kaflanum: Greiðslur og skýrsluskil

Ýmis atriði

  • Umsókn má skrifa á íslensku eða ensku

  • Ef notandi er erlendis gæti þurft að nota auðkennisappið frekar en auðkenningu gegnum símanúmer.

  • Eftir að umsókn er send sést hún undir „Umsóknir->Innsendar” á mínum síðum þess notanda sem sendi.