Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Mennta- og barnamálaráðuneyti fer með yfirstjórn styrkja til íslenskukennslu fyrir útlendinga.

Allir umsækjendur fá upplýsingar um afgreiðslu styrkja í tölvupósti. Þeir aðilar sem fá styrk að upphæð kr. 1.000.000 eða meira þurfa að gera samning við Rannís (sem áskilur sér þó rétt að gera samning vegna lægri styrkupphæða ef svo ber undir).

Við upphaf námskeiðs og þegar gerð samnings er lokið, þ.e. í þeim tilfellum sem það á við, er greitt allt að 40% af heildarvilyrði fyrirfram. Lokagreiðsla fer fram þegar borist hafa fullnægjandi upplýsingar um hvert námskeið, nöfn og kennitölu þátttakenda.