Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Íslenskukennsla fyrir útlendinga

Greiðslur og skýrsluskil

Upphæð styrkveitinga

Sjá hjálparskjal (excel) til að reikna viðmiðunarupphæðir í umsókn:


Sé vikið frá viðmiðunarupphæðum skal útskýra í umsókn hvers vegna.

Styrkir miðast við það fjármagn sem til ráðstöfunar er hverju sinni og eftirspurn. Hafi umsækjandi áður hlotið styrk er við úthlutun höfð hliðsjón af fjölda þátttakenda hjá viðkomandi fræðsluaðila við uppgjör fyrri styrkveitinga.

Styrkur reiknast út frá tveimur breytum. Upphæðir í eftirfarandi upplýsingum miðast við úthlutun ársins 2025 en gert er ráð fyrir sömu eða sambærilegum upphæðum fyrir námskeið á árinu 2026, með fyrirvara um samþykki Alþingis á fjárheimildum.

Breyta A – Nemendastund.
  • Ein kennslustund (lágmark 40 mínútur) fyrir einn nemanda telst vera ein nemendastund. 1 nemendastund = 283 kr.

  • Samkvæmt námskrám (grunnnám og framhald) er hver áfangi/námskeið 60 kennslustundir. Ein kennslustund er lágmark 40 mínútur. Styrkur á hvern nema á hverju námskeiði = 60 x 283 kr. = 16.980 kr.

  • Nemendur mega ekki vera færri en 10 á námskeiði (í undantekningartilvikum er hægt að samþykkja að fjöldi nemenda farið niður í 6). Lágmarsstuðningur vegna nemenda á hverju námskeiði er því almennt = 16.980 kr x 10 = 169.800 kr.

  • Nemendur mega ekki vera fleiri en 20 á námskeiði. Hámarksstuðningur vegna nemenda á hverju námskeiði er því = 16.980 kr x 20 = 339.600 kr.


Breyta B – Námskeiðsstund. Grunnkostnaður námskeiðs.
  • Ein kennslustund óháð fjölda nemenda er styrkt um 2.830 kr.

  • Samkvæmt námskrám (grunnnám og framhald) er hver áfangi/námskeið 60 kennslustundir.

  • Grunnstuðningur fyrir hvert haldið námskeið er 2.830 kr x 60 = 169.800 kr.


Dæmi 1: Stuðningur fyrir 1 námskeið með 10 nemendum.
Breyta A – nemendastundir: 16.980 x 10 = 169.8000 kr.
Breyta B – grunnkostnaður námskeiðs: 169.800 kr.
Samtals stuðningur við námskeið, breytur A + B = 339.600 kr.

Dæmi 2: Stuðningur fyrir 10 námskeið með 15 nemendum hvert.
Breyta A – nemendastundir: 16.980 x 15 nemendur x 10 námskeið = 2.547.000 kr.
Breyta B – grunnkostnaður námskeiðs: 169.800 kr x 10 námskeið = 1.698.000 kr kr.
Samtals stuðningur við námskeið, breytur A + B = 4.245.000 kr.

Skýrslur

  • Lokaskýrsla skal berast áður en til lokagreiðslu styrks kemur.

  • Í lokaskýrslu skal m.a. koma fram listi með nöfnum og kennitölum nemenda sem sóttu námskeiðin og ber þá að taka mið af þeim sem mættu í 75% kennslustunda að lágmarki. Fækki námskeiðum eða þátttakendum á námskeiðum frá því sem upphaflega var áætlað, skerðist styrkurinn hlutfallslega sem fækkuninni nemur.

  • Styrkþegar hafa kost á að sækja um milligreiðslu sem nemur 40% af upphæð úthlutunar og skal þá senda á netfang sjóðsins lista með kennitölum og nöfnum þeirra sem sóttu námskeiðin flokkað skýrt eftir hverju og einu námskeiði svo hægt sé að sjá hvaða nöfn voru á hverju námskeiði. Með þessum lista skal fylgja texti þar sem fram kemur hversu margir nemendur tímabilsins voru, hversu mörg námskeið voru haldin, hversu margir nemendur sóttu námskeiðin og á hvaða stigi evrópska tungumálarammans námskeiðin voru. Textinn má vera stuttur enda er þetta svo tekið saman í lokaskýrslu í lok árs.

  • Skiladagur gagna um framkvæmd námskeiða kemur fram í samningi.

  • Rannís áskilur sér rétt til að kalla eftir frekari upplýsingum er varða rekstur og faglega framkvæmd námskeiða. Þar með taldar eru upplýsingar um reikningshald, fjármögnun, greiðslur nemenda og viðveruskráningu, sem og upplýsingar um kennara, menntun þeirra,  starfsreynslu og það námsefni sem stuðst er við. 

Ársskýrslur sjóðins eru á eldra vefsvæði Rannís

Fréttir um úthlutanir eru á eldra vefsvæði Rannís