Staða
Lokað fyrir umsóknir
Frestur var til 10. desember 2025
Umsóknartímabil
20.10.2025 - 10.12.2025
Styrkjaflokkun
Innlent, Nám og kennsla, Starfs- og símenntun
Tegund
Fjármögnun
Þjónustuaðili
Rannsóknamiðstöð Íslands
Styrkir til íslenskukennslu fyrir útlendinga
Styrkir eru veittir til íslenskukennslu fyrir útlendinga sem búsettir eru hér á landi, og skráðir eru með lögheimili í Þjóðskrá.
Staða
Lokað fyrir umsóknir
Frestur var til 10. desember 2025
Umsóknartímabil
20.10.2025 - 10.12.2025
Styrkjaflokkun
Innlent, Nám og kennsla, Starfs- og símenntun
Tegund
Fjármögnun
Styrkir til íslenskukennslu fyrir útlendinga
Lokað fyrir umsóknir / Frestur var til 10. desember 2025
Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er í desember ár hvert.
Styrkir eru veittir til íslenskukennslu fyrir útlendinga sem búsettir eru hér á landi, og skráðir eru með lögheimili í Þjóðskrá. Veittir eru styrkir til fræðsluaðila, fyrirtækja og stofnana er bjóða nám í íslensku sem ekki er hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.
Hverjir geta sótt um?
Fræðsluaðilar, fyrirtæki og stofnanir er bjóða nám í íslensku sem er ekki hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.
Fræðsluaðilar skulu hafa öðlast hafa viðurkenningu mennta- og barnamálaráðuneytisins á grundvelli 7. gr. laga um framhaldsfræðslu og fyrirtæki eða stofnanir sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá.
Fyrirtæki eða stofnanir, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að hafa samning við viðurkenndan framhaldsfræðsluaðila er annast kennsluna. Í samningi skal koma fram hverjir samningsaðilar eru, lýsing á inntaki þjónustunnar sem veitt er og fjárhæð sem greidd er fyrir hana. Afrit af samningi skal fylgja með umsókn fyrirtækis.
Hvernig er sótt um?
Sækja skal um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.
Til að nálgast umsóknarformið þarf umsækjandi að tengjast umsóknarkerfi Rannís með rafrænum skilríkjum.
Leiðbeiningar um innskráningu og hvernig ný umsókn er stofnuð (ef opið er fyrir umsóknir).
Svör við spurningum
Tekið er á móti fyrirspurnum í netfanginu islenskukennsla.utlendinga@rannis.is eða í síma 515 5843.
Þjónustuaðili