22. maí 2026
22. maí 2026
Hugum að sólarvörnum
Nú er kominn sá tími árs þegar sólin á Íslandi er nægilega sterk til að valda húðbruna. Það er vel þekkt að húðbruni eykur líkur á húðkrabbameini síðar á ævinni og því er fólk hvatt til að huga að sólarvörnum. Börn eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir útfjólubláum geislum sólar og því þarf að vernda þau sérstaklega vel. Auk húðbruna geta útfjólubláir geislar valdið skaða á augum og flýtt fyrir hrukkumyndun og öldrun húðarinnar.

Geislavarnir minna á að með sólarvörnum er ekki aðeins átt við þar til gerð húðkrem, heldur má einnig verjast sólinni t.d. með fatnaði og sólgleraugum, með því að vera í skugga og að takmarka útiveru þegar sólin er sterkust á tímabilinu kl. 10 – 16.
UV stuðullinn (e. UV index) er gagnleg leið til að vita hvort þörf sé á að nota sólarvarnir á tilteknum stað á tilteknum tíma. Ef UV stuðullinn er 3 eða hærri þá er ráðlagt að verja sig fyrir sólinni. Á Íslandi getur UV stuðullinn náð þessu gildi frá miðjum apríl og fram í seinni hluta september. Því hærri sem UV stuðullinn er, því sterkari er útfjólublá geislun sólar og því styttri tíma tekur það fyrir húðina að brenna í sólinni.
Geislavarnir birta rauntímamælingar á UV stuðlinum í Reykjavík á heimasíðu sinni og á vefslóðinni uv.is. Á ferðalögum erlendis er t.d. hægt að nota alþjóðlega UV smáforritið SunSmart (aðgengilegt á App Store og Google Play) til að sjá UV stuðulinn hvar sem er í heiminum og hvenær þörf er á að nota sólarvarnir yfir daginn.
Fyrr í þessari viku (18. – 20. maí) hefur UV stuðullinn hæst náð 4 í Reykjavík þegar sólin hefur verið sterkust á tímabilinu kl 10 – 16, eins og sést á grafinu að neðan. Styrkur sólarinnar á Íslandi mun aukast þegar líður á sumarið og nær hámarki í júní og júlí þegar sólin er hæst á lofti.

Mikilvægt er að hafa í huga að UV stuðullinn hækkar þegar ferðast er suður á bóginn. Sem dæmi má nefna að UV-stuðullinn verður 9 á Tenerife í dag (22. maí) þegar sólin er hæst á lofti. UV-stuðullinn hækkar einnig með aukinni hæð yfir sjávarmáli og endurkast sólarljóss, til dæmis af snæviþakinni jörð og vatni, getur valdið hækkun á UV-stuðlinum umfram mæld gildi.
Að lokum bendum við á eftirfarandi fræðsluefni:
Svar á Vísindavefnum um hvenær þarf að nota sólarvarnir á Íslandi: Vísindavefurinn: Er einhver árstími á Íslandi þar sem sólin hefur engin áhrif á húðina og óþarfi að nota sólarvörn?
Í skjali Landlæknisembættisins, Verum klár í sólinni, er að finna ýmis ráð sem gott er að rifja upp
Á Heilsuveru er vefsíðan Örugg í sólinni með gagnlegar upplýsingar
Á heimasíðu Krabbameinsfélagsins er umfjöllun um sólarvarnir og um útfjólubláa geisla
Grein eftir læknana Bárð Sigurgeirsson og Hans Christian Wulf í Læknablaðinu frá árinu 2011: Roðavaldandi geislar sólarinnar og þýðing þeirra