Fara beint í efnið

5. maí 2026

Hreinar hendur bjarga mannslífum

Í dag, 5. maí, er Alþjóðadagur handhreinsunar. Yfirskrift dagsins hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) árið 2026 er „Aðgerðir bjarga mannslífum“ og minnir á að vönduð handhreinsun er ein einfaldasta og árangursríkasta leiðin til að koma í veg fyrir smit, bæði innan heilbrigðisþjónustunnar og í daglegu lífi.

Handþvottur er mikilvæg sýkingavörn því snerting, bein og óbein, er ein algengasta smitleið sýkla milli manna. Handhreinsun skiptir sérstaklega miklu máli í heilbrigðisþjónustu þar sem hún verndar bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólk og dregur úr líkum á sýkingum sem tengjast heilbrigðisþjónustu.

Með því að viðhafa góða handhreinsun verjum við okkur sjálf, aðra einstaklinga og umhverfið okkar fyrir sjúkdómum.

Hvenær á að þvo eða spritta?

Samkvæmt leiðbeiningum sóttvarnalæknis og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar skal ávallt þvo hendur með vatni og sápu þegar þær eru sjáanlega óhreinar, eftir salernisferðir og áður en matur er tilreiddur. Ef hendur eru ekki sjáanlega óhreinar er handsprittun mjög áhrifarík leið til að eyða örverum.

Góð ráð fyrir vandaða handhreinsun

  • Bleytið hendur og takið hæfilegt magn af sápu.

  • Gætið þess að nudda alla fleti handanna, þar á meðal handarbök, milli fingra, þumalfingur og fingurgóma og skola svo vel.

  • Handþvottur ætti að taka 30–60 sekúndur (sprittun um 20–30 sekúndur).

  • Mikilvægt er að þurrka hendur vandlega með einnota pappírshandþurrkum og nota þurrkuna til að skrúfa fyrir kranann til að forðast endurmengun.

  • Hringar og úr geta safnað sýklum og gert handhreinsun erfiðari. Einnig er mælt með að lágmarka skartgripanotkun við umönnun.

Sóttvarnalæknir hvetur alla, jafnt starfsfólk í heilbrigðisþjónustu sem almenning, til að gefa handhreinsun sérstakan gaum í dag. Hreinar hendur hindra smit.

Sóttvarnalæknir