2. september 2025
2. september 2025
Heilsa, hinseginleiki og mannréttindi
Meginhlutverk embættis landlæknis er að stuðla að heilbrigði landsmanna, allra landsmanna
María Heimisdóttir landlæknir. Ljósmynd: Olga Björt Þórðardóttir
Meginhlutverk embættis landlæknis er að stuðla að heilbrigði landsmanna, allra landsmanna. Heilsa mótast m.a. af samfélagslegum aðstæðum, viðhorfum og aðgengi að þjónustu og ein grundvallarforsenda góðrar heilsu er að njóta mannréttinda. Þegar mannréttindi hinsegin fólks eru ekki virt getur það haft alvarleg áhrif á heilsu. Þunglyndi, kvíði, sjálfsvígshugsanir og líkamleg vanlíðan eru algengari meðal þeirra sem verða fyrir félagslegri útskúfun eða ofbeldi. Þetta er ekki vegna þess að hinsegin fólk sé veikara, síður en svo, heldur vegna þess að samfélagið hefur oft brugðist þeim.
Mannréttindi eru þannig ekki aðeins siðferðileg krafa heldur lífsnauðsynleg forsenda heilsu, m.a. fyrir hinsegin fólk (LGBTQIA+), sem of oft hefur þurft að berjast fyrir viðurkenningu og virðingu. Hvað felst í þessu? Við höfum öll rétt til að vera þau sem við erum og að lifa lífinu án þess að þurfa að vera í felum, t.d. með okkar kynvitund og kynhneigð, án ótta við mismunun, ofbeldi eða útilokun. Við eigum öll rétt á viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Hinsegin fólk getur þurft sérhæfða þjónustu, t.d. í tengslum við kynstaðfestandi meðferð, HIV-forvarnir eða geðheilbrigði. Mannréttindi tryggja að slík þjónusta sé veitt af virðingu, fagmennsku og án fordóma. Og við eigum öll rétt á vernd gegn mismunun. Því miður eru of mörg dæmi þar sem hinsegin einstaklingar upplifa fordóma, sem getur leitt til vantrausts og þess að fólk forðist að leita sér heilbrigðisþjónustu. Að þessu þurfum við að hyggja.
Lausnin liggur í virðingu
Að tryggja mannréttindi hinsegin fólks er ekki aðeins réttlætismál, það er heilbrigðismál. Þegar fólk fær að vera það sjálft, lifa í öryggi og fá þjónustu sem tekur mið af þeirra þörfum, þá fær það tækifæri til að njóta bestu heilsu.
Mannréttindi eru ekki lúxus, þau eru líf. Og fyrir hinsegin fólk eru þau lykillinn að lífi í heilbrigði, mannlegri reisn og von, lífi eins og við viljum öll fá að njóta. Embætti landlæknis hvetur alla landsmenn til að tryggja mannréttindi fyrir okkur öll sem hér búum, þannig byggjum við sterkara og betra samfélag. Mannréttindi fyrir öll eiga að vera sjálfgefin, þú þarft ekki að skilja, þú þarft bara að virða.
María Heimisdóttir landlæknir