8. maí 2026
8. maí 2026
Hantaveirusmit tengd skemmtiferðaskipi
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og fleiri í samstarfi fjölmargra ríkja rannsaka nú hópsmit af völdum hantaveiru sem tengist hollenska skemmtiferðaskipinu MV Hondius. Atvikið er alvarlegt og dauðsföll hafa orðið, en WHO og Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) telja áhættu fyrir almenning litla.

Tímalína og alþjóðleg viðbrögð
Fyrsta tilkynningin barst WHO þann 2. maí síðastliðinn frá Bretlandi, sem tilkynnti stofnuninni um atvikið samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni. Tilefnið var farþegi með alvarleg öndunarfæraeinkenni um borð í skipi á leið frá Argentínu til Grænhöfðaeyja. Þá voru 149 manns um borð, frá 23 ríkjum.
WHO hefur síðan birt nánari tímalínu um hópsýkinguna. Fyrsti sjúklingurinn sem tengist skipinu fékk einkenni 6. apríl og lést 11. apríl. Maki hans veiktist síðar, fór frá borði í kjölfarið og lést 26. apríl. Þriðji farþegi skipsins fékk einkenni 24. apríl og er enn á gjörgæslu í Suður-Afríku. Rannsóknir í Suður-Afríku staðfestu hantaveirusýkingu og í kjölfarið að um Andesveiru (undirtegund) er að ræða. Einn farþegi til viðbótar lést 2. maí og fjórir hafa lagst inn á sjúkrahús í Evrópu (í Hollandi og Sviss). Þegar WHO birti uppfærslu sína 7. maí sýndu engir farþegar eða áhafnarmeðlimir sem enn voru um borð einkenni.
Spánn samþykkti að leyfa skipinu að leggjast að bryggju á Kanaríeyjum eftir að Grænhöfðaeyjar höfnuðu beiðni um að skipið fengi að leggjast þar að bryggju vegna lýðheilsusjónarmiða. Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO, þakkaði Spáni fyrir viðbrögðin og sagði: „Áhættan fyrir íbúa Kanaríeyja er í raun lítil.“
Hvað er hantaveira?
Hantaveirur eru hópur veira sem berast með nagdýrum. Fólk smitast yfirleitt eftir nánd við sýkt nagdýr eða þvag, saur eða munnvatn þeirra. Smit getur orðið þegar fólk andar að sér ryki eða ögnum með smitefni, einkum í lokuðum eða illa loftræstum rýmum. Smit getur einnig orðið við beina snertingu við smitefni eða sjaldnar við bit frá nagdýrum.
Fæstar hantaveirur berast milli manna. Andesveira er mikilvæg undantekning en takmarkað smit manna á milli hafa verið staðfest vegna hennar, yfirleitt eftir nána og langvarandi snertingu, til dæmis meðal heimilisfólks, maka eða við umönnun sjúklings.
WHO hefur lagt áherslu á að þessi hópsýking sé ólík COVID-19 eða inflúensu og að þetta sé ekki upphaf heimsfaraldurs. WHO bendir á að hantaveirur hafi verið til staðar í langan tíma, séu vel þekktar og dreifist ekki jafnauðveldlega og kórónuveirur eða inflúensuveirur gera.
Hantaveirur, sem finnast í Norður-, Mið- og Suður-Ameríku, eru þekktar fyrir að valda hjarta- og lungnaheilkenni. Andesveiran er hluti af þessari fjölskyldu og er sú eina sem þekkist að geti valdið smitum milli manna við mikla nánd.
Hantaveirur sem finnast í Evrópu og Asíu eru þekktar fyrir að valda blæðandi hitasótt með nýrnabilun. Smit milli manna þekkist ekki tengt þeim undirgerðum hantaveiru.
Lýðheilsa og sóttvarnir
Eftirfylgni yfirvalda heldur áfram í nokkrum löndum en hluti farþega hafði þegar farið frá borði áður en sýkingin var staðfest. Þeir eru álitnir útsettir og lönd hafa samband við sína þegna og gera ráðstafanir varðandi leiðbeiningar um að fylgjast með einkennum, prófanir, sóttkví og einangrun eftir aðstæðum, á meðan smitrakning heldur áfram. Þessar ráðstafanir eru varúðarráðstafanir og breyta ekki því mati að áhætta fyrir almenning sé lítil.
Sérfræðingur frá WHO, hollenskir læknar og sérfræðingur ECDC fóru um borð í skipið á Grænhöfðaeyjum, gerðu heilbrigðisskoðanir og áhættumat og fóru yfir sóttvarnir og birgðir fyrir siglinguna til Tenerife. Farþegar sem enn voru um borð voru beðnir um að halda sig í klefum sínum á meðan sótthreinsun fór fram. Ef einhver fengi einkenni yrði viðkomandi tafarlaust einangraður.
WHO hefur að auki útvegað greiningarpróf fyrir rannsóknarstofur í fimm löndum og vinnur að leiðbeiningum um örugga landgöngu farþega og flutning þeirra til síns heima. ECDC er einnig í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld í einstökum löndum og styður við leiðbeiningar og prófanir.
Eftirlit heldur áfram vegna þess að meðgöngutími Andesveiru getur verið allt að sex vikur (tíminn frá smiti þar til einkenni koma fram).
Einkenni hantaveirusýkingar
Einkenni hantaveirusýkingar geta byrjað með hita, höfuðverk, bein- og vöðvaverkjum og meltingarfæraeinkenni geta fylgt, svo sem ógleði, uppköst, kviðverkir eða niðurgangur. Alvarleg veikindi af völdum hantaveira í Ameríku geta þróast hratt yfir í hósta, mæði, vökvasöfnun í lungum og lost. Hantaveiru hjarta- og lungnaheilkenni getur verið alvarlegt og í sumum tilvikum banvænt.
Allir sem hafa verið skilgreindir sem farþegar, áhafnarmeðlimir eða nánir tengiliðir MV Hondius þurfa að fylgja ráðleggingum yfirvalda í sínu landi og leita tafarlaust læknis ef einkenni koma fram.
Engin sértæk veirulyfjameðferð eða bóluefni er til gegn hantaveirusýkingu. Meðferð er stuðningsmeðferð, eftirlit og meðhöndlun fylgikvilla sem tengjast öndunarfærum, hjarta og nýrum. Snemmbær læknishjálp, þar á meðal gjörgæslumeðferð þegar þörf er á, bætir horfur.
Rangar upplýsingar og orðrómur
WHO hefur brugðist við röngum og villandi upplýsingum sem hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. WHO hefur lýst því yfir að engin merki séu um að þetta sé upphaf heimsfaraldurs. Það er verið að beita vel þekktum sóttvarnaaðgerðum, þar á meðal smitrakningu, einangrun, vöktun og almennum sóttvörnum eins og þrifum, sem geta rofið smitkeðjur og komið í veg fyrir frekari dreifingu.
Fyrri takmörkuð hópsýking Andesveiru í Argentínu í nóvember 2018 til febrúar 2019 tengdist náinni snertingu í nánu umhverfi. WHO hefur einnig vísað til þeirrar reynslu til að útskýra hvers vegna stórfelld útbreiðsla er ólíkleg þegar viðeigandi sóttvarnaaðgerðir eru viðhafðar.
Hvað þýðir þetta fyrir almenning?
Þetta er alvarleg hópsýking sem krefst samræmingar og alþjóðlegs samstarfs, auk viðeigandi sóttvarnaráðstafana vegna aðhlynningar þeirra sem hafa veikst og aðgæslu meðal þeirra sem voru um borð meðan meðgöngutími líður. Farþegar, áhöfn og nánir tengiliðir sem tengjast MV Hondius þurfa því að fylgja leiðbeiningum en allur almenningur þarf ekki að hafa áhyggjur.
Sóttvarnalæknir
Frekari upplýsingar
Hantavirus. WHO
Hantavirus cluster linked to cruise ship travel, Multi-country. WHO
WHO’s response to hantavirus cases linked to a cruise ship. WHO
Factsheet on orthohantavirus infections. ECDC
Hantavirus outbreak on cruise ship under investigation: risk for Europe very low. ECDC
Hantavirus-associated cluster of illness on a cruise ship: ECDC assessment and recommendations. ECDC