Fara beint í efnið

26. febrúar 2024

Grásleppuvertíðin hefst 1. mars

Búið er að opna fyrir umsóknir um grásleppuveiðileyfi.

fiskistofa strandveiði mynd

Einyrkjar og prókúruhafar sækja um leyfið í gegnum stafrænt umsóknarkerfi á Ísland.is og gildir reglugerð um hrognkelsaveiðar árið 2024 um veiðarnar. Greitt er fyrir leyfið í umsóknarferlinu og hægt er að fá leyfið útgefið samstundis eða velja aðra upphafs dagsetningu. Veitt grásleppuveiðileyfi er sent í pósthólf útgerðar á Ísland.is.

Helstu breytingar á reglum:

  • Veiðitímabilið er frá 1.mars. að undanskildum innanverðum Breiðafirði þar sem veiðar eru heimilar frá 20. maí

  • Veiðileyfi er veitt til 25 daga.

  • Á tímabilinu 1. til 20. mars telur hver löndun sem einn veiðidagur.

  • Bátur gert eitt hlé á veiðum fram yfir 20. mars og hefjast þá samfelldir veiðidagar að frádregnum þeim dögum sem þegar hafa verið notaðir.

Skilyrði:

  • Almennt veiðileyfi þarf til að fá grásleppuveiðileyfi.

  • Grásleppuveiðileyfi fæst á grundvelli réttinda til grásleppuveiða.

  • Réttindin þurfa að vera virk til að hægt sé að sækja um leyfi.

  • Séu réttindi í geymslu skal senda tölupóst á grasleppa@fiskistofa.is með ósk um að réttindi séu tekin úr geymslu.

Allar nánari upplýsingar um reglur, skilyrði og tilhögun veiðanna má nálgast í grein um Grásleppuveiðileyfi.