Fara beint í efnið

30. október 2026

Fundur norrænna þjóðskjalavarða í Dyflinni

Norrænu þjóðskjalaverðirnir héldu sérstakan fund í tengslum við fund evrópskra þjóðskjalavarða í Dyflinni þar sem málefni norræns samstarfs voru til umræðu.

Norrænir þjóðskjalaverðir í Dyflinni. Frá vinstri: Hrefna Róbertsdóttir, Morten Ellegaard, Inga Bolstad, Päivi Happonen og Daniel Forsman. Ljósmynd: Ole Gausdal

Fyrsta málið á dagskrá var sameiginleg yfirlýsing þjóðskjalasafna Norðurlanda þar sem lögð er áhersla á hlutverk skjalasafna sem hluta af stafrænum grunninnviðum samfélagsins. Því miður gat danska Rigsarkivet ekki undirritað yfirlýsinguna. Hér má lesa meira um yfirlýsinguna.

Næst á dagskrá voru umræður og reynslumiðlun um innleiðingu og eftirfylgni stefnumótunar þjóðskjalasafnanna. Ákveðið var að halda þeirri umræðu áfram á fundi norrænna þjóðskjalavarða í Gautaborg í september 2027, þar sem sviðsstjórar safnanna munu einnig taka þátt.

Þriðja málið laut að norrænu samstarfi um viðmið varðandi varðveislumat skjala af stafrænum uppruna. Stuðningur var við að koma á fót norrænu samstarfsneti sem geti unnið að sameiginlegum áskorunum á þessu sviði.

Jafnframt var samþykkt að stofna norrænan sérfræðingahóp um viðbúnaðarmál og neyðarstjórnun. Á hinn bóginn verður sérfræðingahópur um innbyggða skjalavörslu lagður niður. Ákvörðun um mögulega stofnun sérstaks hóps um stafræna notendaþjónustu var frestað til næsta fundar.

Finnar kynntu tillögu að sameiginlegu verkefni undir heitinu Lýsigögn skjalasafna á tímum gervigreindar (Archival Metadata in the Age of AI). Tillagan felur í sér að sótt verði um fjármögnun til að rannsaka hvernig stafræn umbreyting og möguleg notkun gervigreindar muni hafa áhrif á lýsigögn skjalasafna. Ákvörðun um verkefnið var frestað til næsta fundar.

Á dagskrá voru einnig undirbúningur Norrænna skjaladaga sem haldnir verða í Helsinki 19.-20. september 2028, auk umræðna um norræn hakkaþon árin 2027 og 2028, þar sem Finnland og Ísland verða gestgjafar.