Norrænu þjóðskjalasöfnin sameinast um stefnumótun á sviði gagna og gervigreindar
22. október 2026
Þjóðskjalaverðir Íslands, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu í Dyflinni þann 20. október 2026 þar sem kallað er eftir öflugri aðkomu þjóðskjalasafna að mótun stefnu stjórnvalda um gögn, upplýsingastjórnun og gervigreind.

Daniel Forsman, Inga Bolstad, Hrefna Róbertsdóttir og Päivi Happonen
Eftir því sem notkun gervigreindar í sköpun efnis verður algengari verður jafnframt erfiðara að rekja og sannreyna uppruna upplýsinga. Spurningin um hvernig hægt er að tryggja áreiðanleika og rekjanleika upplýsinga verður æ mikilvægari. Í yfirlýsingunni er bent á að þjóðskjalasöfn gegni lykilhlutverki í þessu samhengi og séu mikilvægur hluti af stafrænum grunninnviðum samfélagsins.
Traust á upplýsingum er ein af grunnforsendum lýðræðislegs samfélags. Á tímum hraðrar tækniþróunar og aukinnar notkunar gervigreindar verður sífellt mikilvægara að tryggja uppruna, áreiðanleika og varðveislu opinberra gagna. Þjóðskjalasöfn gegna þar lykilhlutverki og með þessari sameiginlegu yfirlýsingu viljum við undirstrika mikilvægi þess að sú sérþekking nýtist við mótun stefnu og framtíðarsýnar á sviði gagna og gervigreindar, segir Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður.
Þjóðskjalasöfn Norðurlandanna deila þeirri sýn að hlutverk þeirra hafi þróast samhliða stafrænni umbreytingu opinberrar stjórnsýslu. Í dag gegna þau mikilvægu hlutverki í stjórnun og varðveislu stafrænna upplýsinga og sérþekking þeirra skiptir sífellt meira máli fyrir öruggt upplýsingaflæði hins opinbera, áreiðanlega upplýsingastjórnun og þróun gervigreindar.
Áreiðanleg gervigreind byggir á traustum upplýsingum
Upplýsingar í opinberri stjórnsýslu verða nú til og færast milli stofnana og upplýsingakerfa á stafrænu formi. Um leið og gervigreind og sjálfvirk upplýsingavinnsla skapa ný tækifæri til nýtingar gagna eykst þörfin fyrir að tryggja að upplýsingarnar séu ósviknar, aðgengilegar, varðveittar til framtíðar og notaðar með öruggum hætti.
Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á að varðveisla gagna sé órjúfanlegur hluti af stafrænni upplýsingastjórnun. Hvort upplýsingar finnist, varðveitist og nýtist í framtíðinni ræðst að miklu leyti af ákvörðunum sem teknar eru þegar þær verða til og þegar upplýsingakerfi eru hönnuð. Því sé sérþekking þjóðskjalasafna mikilvæg við þróun stafrænna innviða og samhæfingu upplýsingakerfa hins opinbera.
Vilja hafa meira áhrif á stefnumótun
Með sameiginlegu yfirlýsingunni leggja þjóðskjalasöfn Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar áherslu á að breytt hlutverk þeirra verði viðurkennt betur í stefnumótun, stjórnsýslu og löggjöf þar sem við á. Jafnframt lýsa þau yfir vilja til að taka virkari þátt í stefnumótun á landsvísu og á Evrópska efnahagssvæðinu á sviði gagna, upplýsingastjórnunar og gervigreindar.
Aukin samvinna þjóðskjalasafnanna á að styrkja sameiginlega norræna sýn á þessi mál. Norðurlöndin standa þar vel að vígi vegna mikillar stafrænnar þróunar, langrar hefðar fyrir opnum stjórnsýsluháttum og mikils trausts almennings til opinberra stofnana.
Yfirlýsingin undirstrikar sameiginlega afstöðu þjóðskjalasafnanna um að upplýsingastjórnun sem tryggir áreiðanleika og rekjanleika upplýsinga sé grundvallarforsenda trausts stafræns samfélags og framtíðarnýtingar gagna.
Undir yfirlýsinguna rituðu Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður Íslands, Päivi Happonen ríkisskjalavörður Finnlands, Daniel Forsman ríkisskjalavörður Svíþjóðar, og Inga Bolstad þjóðskjalavörður Noregs.
Hér má lesa yfirlýsinguna: