Ísland.is
  <description>Ísland.is</description>
Nýr gagnagrunnur um alþingiskosningar
  <description>Nýr vefgagnagrunnur um alþingiskosningar á árunum 1874–1903 opnar á miðlunarvef Þjóðskjalasafns Íslands í tilefni verkalýðsdagsins 1. maí.</description>
Mannauður heimsækir Þjóðskjalasafn Íslands
  <description>Þjóðskjalasafn Íslands tók nýlega á móti félagsfólki í Mannauði, félagi mannauðsfólks. Þau sem starfa hjá aðilum sem bera afhendingarskyldu til safnsins voru sérstaklega boðin velkomin og mættu alls 45 manns.</description>
Skjalavörður í gagnaskil og eftirlit
  <description>Þjóðskjalasafn Íslands óskar eftir að ráða skjalavörð til starfa á skjalastjórnar- og skjalavörslusviði safnsins. Starfið er fullt starf í fageiningu gagnaskila og eftirlits.  </description>
Lokað á lestrarsal fimmtudaginn 26. mars
  <description>Vegna veðurviðvörunar verður lestrarsalur Þjóðskjalasafns lokaður fimmtudaginn 26. mars.  </description>
Björgunarafrekið við Látrabjarg - Endurfundir hljóðs og myndar
  <description>Þjóðskjalasafn Íslands og Kvikmyndasafn Íslands bjóða til hádegisfundar í sal Þjóðskjalasafns þriðjudaginn 31. mars kl. 12-13. Tilefnið er sameining hljóðs og myndar kvikmyndarinnar „Björgunarafrekið við Látrabjarg“ frá 1949 en hljóðrás kvikmyndarinnar hefur verið varðveitt í Þjóðskjalasafni en kvikmyndin sjálf í Kvikmyndasafninu. Sýnd verða brot úr kvikmyndinni og Gunnar Tómas Kristófersson flytur erindi um kvikmyndina og varðveislu hennar. Viðburðurinn er opinn og eru öll velkominn.</description>
Skjöl Alþýðusambands Íslands afhent til Þjóðskjalasafns
  <description>Í vikunni undirrituðu Alþýðusamband Íslands og Þjóðskjalasafn Íslands samning um skil á pappírsskjalasafni ASÍ til safnsins. Afhendingin inniheldur málasafn ASÍ frá 1967-2022. Með afhendingunni er varðveisla mikilvægra heimilda um starfsemi sambandsins og sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar tryggð.</description>
Metár í móttöku gagna og þörf fyrir meira rými
  <description>Árið 2025 tók Þjóðskjalasafn við meira af gögnum til varðveislu en nokkru sinni áður. Ljóst er að safnið þarf meira og hentugra rými fyrir safnkostinn og nýlega var auglýst eftir húsnæði til leigu.</description>
Stafræn endurgerð Borgarskjalasafns flutt á vef Þjóðskjalasafns
  <description>Hluti af tilfærslu á verkefnum og safnkosti Borgarskjalasafns til Þjóðskjalasafns er vefur og stafræn endurgerð Borgarskjalasafns.</description>
Könnun um vefmiðlun Þjóðskjalasafns
  <description>Undirbúningsvinna er nú í gangi fyrir smíði á nýjum miðlunarvef fyrir Þjóðskjalasafn Íslands. Mikilvægur hluti undirbúningsins er að leita álits notenda og sett hefur verið upp stutt netkönnun.</description>
Laust starf skjalavarðar
  <description>Þjóðskjalasafn Íslands óskar eftir að ráða þjónustulundaðan skjalavörð til starfa á miðlunar- og rannsóknarsviði safnsins. Starfið felst í afgreiðslu og svörun fyrirspurna frá viðskiptavinum Þjóðskjalasafns ásamt þátttöku í öðrum verkefnum safnsins eftir þörfum og atvikum. Um fullt starf er að ræða.</description>
Pourquoi-Pas?, Jamestown og Sankti Páll á Safnanótt
  <description>Um 50 gestir lögðu leið sína á Þjóðskjalasafn Íslands á Safnanótt föstudaginn 6. febrúar og hlýddu á fyrirlestra og skoðuðu muni sem tengdust þema kvöldsins sem að þessu sinni var Skipsskaðar við Ísland.</description>
Skipsskaðar á Safnanótt í Þjóðskjalasafni Íslands 6. febrúar 2026
  <description>Skipsskaðar við Ísland er þema safnanætur í Þjóðskjalsafni Íslands í ár. Fjallað verður um skipbrot Pourquoi – Pas?, Jamestown og spítalaskipsins Sankti Páls í fyrirlestrum og munir og skjöl sem tengjast efni þeirra verða til sýnis. </description>
Skákmót í Þjóðskjalasafni
  <description>Hraðskákmót Þjóðskjalasafns Íslands og Skáksambands Íslands fór fram í lestrarsal Þjóðskjalasafns þann 23. janúar síðastliðinn. </description>
Hjörleifur Guttormsson afhendir einkaskjalasafn sitt til varðveislu
  <description>Fimmtudaginn 15. janúar afhenti Hjörleifur Guttormsson, náttúrufræðingur og fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, einkaskjalasafn sitt formlega til varðveislu á Þjóðskjalasafni Íslands.</description>
Hraðskákmót Þjóðskjalasafns og Skáksambands Íslands
  <description>Föstudaginn 23. janúar verður haldið hraðskákmót á vegum Þjóðskjalasafns Íslands og Skáksambands Íslands. Mótið er boðsmót en áhugasamir gestir eru velkomnir að koma og fylgjast með mótinu í lestrarsal Þjóðskjalasafns að Laugavegi 162. Gert er ráð fyrir að keppendur verði um tuttugu talsins.</description>
Tveggja áratuga þjóðlendurannsóknum lokið
  <description>Frá árinu 2004 hefur Þjóðskjalasafn unnið að kerfisbundinni gagnaöflun um jarðir og landsvæði en hún hefur verið framkvæmd samhliða málsmeðferð óbyggðanefndar og í samstarfi við nefndina um þjóðlendumál. Svæði 12, eyjar og sker, var síðasta svæðið á borði nefndarinnar en gagnaöflun um það lauk um miðjan desember síðastliðinn. Þar með er lokið þessu rúmlega tveggja áratugaverkefni innan Þjóðskjalasafns.</description>
Nýtt skipurit Þjóðskjalasafns tók gildi 1. janúar 2026
  <description>Um áramótin tóku gildi breytingar á skipuriti Þjóðskjalasafns sem snúa einkum að hagræðingu og aukinni skilvirkni starfseminnar í kjölfar fjölgunar verkefna og starfsfólks.</description>
Við leitum að kerfisstjóra
  <description>Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf kerfisstjóra. Leitað er að drífandi einstaklingi í spennandi og fjölbreytt starf hjá öflugri menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera. Um fullt starf er að ræða og er kerfisstjóri hluti af öflugu teymi á skrifstofu rekstrar. </description>
Gleðilega hátíð!
  <description>Þjóðskjalasafn Íslands óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og þakkar ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.</description>
Afgreiðslutími á lestrarsal yfir hátíðarnar
  <description>Lokað verður á lestrarsal Þjóðskjalasafns jóladagana 24.-25. desember. Opið á Þorláksmessu og 30. desember. </description>
Kristjana Kristinsdóttir kveður Þjóðskjalasafn eftir brautryðjandastarf í 38 ár
  <description>Kristjana Kristinsdóttir fagnaði sjötugsafmæli sínu 11. desember með samstarfsfólki sínu á Þjóðskjalasafni. Á næstum fjórum áratugum hefur Kristjana unnið mikið mótunarstarf í skjalavörslu og skilur eftir sig djúp spor í starfsemi safnsins.</description>
Ný gjaldskrá Þjóðskjalasafns tekur gildi 1. janúar 2026
  <description>Ný gjaldskrá Þjóðskjalasafns Íslands nr. 1307/2025 hefur verið birt í B-deild Stjórnartíðinda og mun hún taka gildi 1. janúar 2026. Frá sama tíma fellur eldri gjaldskrá úr gildi. Gjaldskráin er sett með heimild í 48. gr.a laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn. </description>
Miklar framfarir í skjalahaldi sveitarstjórnarskrifstofa og umfang pappírsskjala hefur aukist verulega
  <description>Ný skýrsla um skjalavörslu og skjalastjórn sveitarstjórnarskrifstofa sem eru afhendingarskyldar til Þjóðskjalasafns Íslands sýnir að skjalahald hefur tekið stöðugum framförum og reglufylgni aukist verulega á undanförnum árum. Umfang pappírsskjala sem skilaskyld eru hefur þó aukist mjög. Þá er þróun rafrænnar skjalavörslu sveitarstjórnarskrifstofa hæg en stöðug.</description>
Landsnefndin fyrri 1770–1771 I-VI nú aðgengileg í stafrænni útgáfu
  <description>Bækurnar Landsnefndin fyrri 1770–1771 I–VI eru nú aðgengilegar í stafrænni útgáfu. Á vef Landsnefndarinnar hefur verið hægt að nálgast ítarlegar upplýsingar um skjölin, rannsóknarverkefnið og skoða frumrit skjalanna en nú er einnig hægt að nálgast öll sex bindin í rafrænni útgáfu.</description>
Hvað má lesa úr dómsskjölum? Rannsóknadagur Þjóðskjalasafns 2025
  <description>Á árlegum Rannsóknadegi 9. október síðastliðinn var kastljósinu beint að einu af stærri rannsóknaverkefnum Þjóðskjalasafns, útgáfu á dómum og skjölum Yfirréttarins á Íslandi sem starfaði árin 1573 til 1800.</description>