Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Skjalavarsla og skjalastjórn

Skjalavarsla og skjalastjórn felur í sér skipulögð vinnubrögð við daglega meðferð og varðveislu gagna, í hvaða formi sem þau eru, sem til verða hjá afhendingar­skyldum aðilum.

Varðveisla gagna afhendingarskyldra aðila er lögbundin og eyðing þeirra óheimil nema með sérstakri heimild. Í gögnum afhendingarskyldra aðila eru upplýsingar um rekstur og stöðu viðkomandi aðila, alla ákvarðana­töku og hvernig staðið er að henni, sem og um réttindi og skyldur einstaklinga og lögaðila. Þar er að finna skýringar á framgangi mála í gegnum tíðina. Skjalasafnið er því mikilvægur hluti starfseminnar og í því er jafnframt að finna sögu viðkomandi aðila.

Þjóðskjalasafn Íslands hefur það hlutverk lögum samkvæmt að setja reglur um skjala­vörslu og skjala­stjórn afhendingar­skyldra aðila, gefa út leiðbein­ingar, standa fyrir fræðslu og veita ráðgjöf um skjalavörslu og skjalastjórn. Jafnframt hefur safnið eftirlit með því að afhendingar­skyldir aðilar uppfylli þau lög og reglur sem skjalahaldi þeirra eru settar.

Ráðgjöf um skjalavörslu og skjalastjórn

Hér er hægt að nálgast leiðbeiningar og annað upplýsingaefni um skjalavörslu og skjalastjórn. Skjalaverðir Þjóð­skjalasafns veita jafnframt ráðgjöf og leiðbeiningar um skjalahald afhendingar­skyldra aðila. Hafa má sambandi við skjalaverði safnsins með því að senda tölvupóst á skjalavarsla@skjalasafn.is eða hringja í síma 590 3300 á þessum tímum: