Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. febrúar 2026

Einfaldara að fá endurprentun ökuskírteinis

Nú er auðveldara að fá afrit eða uppfæra eldri ökuskírteini. Nýtt og betra umsóknarferli sparar sporin og margir geta nú lokið umsóknarferlinu alfarið á vefnum, án þess að þurfa að mæta til sýslumanns.

Árlega eru pantaðar um 3.800 endurprentanir (samrit) af ökuskírteinum, til dæmis ef ökuskírteini týnast eða ef númer, ljósmynd eða stimpill sést illa.

Ef þú ert með mynd af þér í skilríkjaskrá, til dæmis úr vegabréfi, getur þú notað þá mynd beint í umsókninni ef hún uppfyllir aldursskilyrði og ökuréttindi þín þarfnast ekki endurnýjunar á næstu 6 mánuðum. Þá þarf hvorki að skila inn nýrri ljósmynd né rithandarsýnishorn hjá sýslumanni.

Hvað þýðir þetta fyrir mig?

  • þú sparar tíma og ferðir

  • þú getur sótt um hvar og hvenær sem er

  • umsóknarferlið er einfaldara og hraðara

  • auðveldara er að uppfæra eldri gerð ökuskírteini eða óskýra ljósmynd

Greining sýnir að um 76.000 einstaklingar á Íslandi eru enn með eldri gerð af ökuskírteini. Þeir geta nýtt þessa nýju umsókn og uppfært ökuskírteini sitt án heimsóknar til sýslumanns. Markmið breytingarinnar er að bæta aðgengi að þjónustu, stytta afgreiðslutíma og gera ferlið notendavænna. Um leið dregur úr bið og álagi í afgreiðslu hjá sýslumönnum.

Ef þú átt ekki viðeigandi mynd í skilríkjaskrá er áfram hægt að sækja um samrit hjá sýslumanni samkvæmt fyrra ferli.

Ótvíræðir kostir

Athygli er vakin á að þeir sem eru enn með eldri bleik pappaökuskírteini eru ekki með stafrænt ökuskírteini. Með því að uppfæra ökuskírteinið þitt:

  • færðu líka stafrænt ökuskírteini, sem þá uppfærist sjálfkrafa

  • geturðu nýtt rafrænar þjónustur, til dæmis skráð þig sem leiðbeinanda í æfingaakstri

  • forðast takmarkanir sem fylgja eldri pappaskírteinum eða ófullnægjandi mynd

Lestu um umsóknarferlið á Ísland.is

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.