19. desember 2025
19. desember 2025
Desemberuppbót til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna
Foreldrar langveikra eða alvarlega fatlaðra barna sem fengu foreldragreiðslur í desember hafa fengið greidda desemberuppbót.

Desemberuppbótin er 84.490 krónur til þeirra foreldra sem hafa fengið mánaðarlegar greiðslur allt árið 2025. Foreldri sem hefur fengið þessar greiðslur skemur en tólf mánuði á árinu 2025 á rétt á hlutfallslegri uppbót í samræmi við þann tíma sem foreldrið hefur fengið greiðslur á árinu. Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 21.123 krónur.
Desemberuppbótin er greidd á grundvelli reglugerðar um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2025.