Prentað þann 18. des. 2025
1265/2025
Reglugerð um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2025.
1. gr. Gildissvið.
Reglugerð þessi gildir um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna í desember 2025.
Tryggingastofnun annast framkvæmd reglugerðarinnar.
2. gr. Desemberuppbætur.
Foreldri langveiks eða alvarlega fatlaðs barns, sem fær greiðslu í desember 2025 samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, á rétt á desemberuppbót að fjárhæð 84.490 kr., enda hafi foreldrið fengið mánaðarlegar greiðslur samkvæmt fyrrnefndum lögum allt árið 2025.
Foreldri sem hefur fengið greiðslur samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, skemur en tólf mánuði á árinu 2025 á rétt á hlutfallslegri desemberuppbót skv. 1. mgr. í samræmi við þann tíma sem foreldrið hefur fengið fyrrnefndar greiðslur á árinu 2025. Miða skal við 1/12 fyrir hvern mánuð.
Desemberuppbót skv. 2. mgr. skal þó aldrei nema lægri fjárhæð en 21.123 kr.
3. gr. Útgreiðsla.
Tryggingastofnun skal greiða út desemberuppbætur samkvæmt reglugerð þessari eigi síðar en 15. desember 2025.
4. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 31. gr. laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1486/2024, um desemberuppbætur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna árið 2024.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 24. nóvember 2025.
Inga Sæland.
Ásgeir Runólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 28. nóvember 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.