Fara beint í efnið

29. febrúar 2024

Dagur heyrnar - málþing um börn, hljóðvist og heyrnarvernd

Föstudaginn 1. mars n.k. verður haldið málþing um börn, hljóðvist og heyrnarvernd á vegum Umboðsmanns barna, Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands, embættis landlæknis og Vinnueftirlits ríkisins.

Dagur heyrnar 2024. Málþing

Á málþinginu verður rætt um hljóðvist í umhverfi barna, rætt við börn og ungmenni um viðhorf þeirra, hvernig hávaði getur haft áhrif á heilsu, líðan og námsárangur. Þá verður fjallað um þau úrræði sem bjóðast til úrbóta. Í lokin verður fjallað um viðbrögð heilbrigðisyfirvalda, tengsl hávaða og heyrnarverndar við lýðheilsu o.fl. Málþingið er haldið í tengslum við Dag heyrnar 2024.

Salurinn Kópavogi
Föstudagurinn 1. mars 2024
10:00-12:00