Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. nóvember 2025

Dagskrá Fjársýsludagsins

Fjársýsludagurinn 2025 verður haldinn fimmtudaginn 13. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica. Fjölbreytt dagskrá verður í boði allan daginn bæði á staðnum og í streymi.

Dagskráin verður með breyttu sniði í ár þar sem henni verður að hluta skipt í málstofur eftir áherslum.

Þátttakendur velja sér málstofu eftir áhugasviði en ekki er sérstök skráning í þær heldur velja gestir sér málstofu á staðnum. Sérstakar málstofur verða á Teams fyrir þátttakendur í streymi.

Tími

Salur A

Salur B

Vox Club

Á netinu

Tegund

8:30

Skráning og kaffi

9:00

Opnun Fjársýsludagsins

9:15

Framtíðin í gagnlegum fjárhag?

9:30

Ný þjónustustefna Fjársýslunnar

9:45

Fjársýsluskólinn

10:00

Nýsköpun með viðskiptakort

10:15

Kaffihlé

10:45

Fjármálafræðslan

Tækifæri í sameiginlegum innkaupum

Mannauður ríkisins

Brot af því besta I - Í streymi

Málstofur (Sjá dagskrá hér)

12:00

Hádegishlé og tengslamyndun

13:00

Fjármálamælaborð ríkisaðila

Fjarvistir, skráning og greiðsla launa í fjarvistum

Nýsköpun: hver er mín áskorun?

Brot af því besta II - Í streymi

Málstofur (Sjá dagskrá hér)

14:30

Kaffihlé

15:00

"Á þriðja glasi..."

15:45

Léttar veitingar

Í dagskrárlok mun Þórhallur Gunnarsson fyrrverandi sjónvarpsmaður og ráðgjafi flytja erindið „Á þriðja glasi...“ en þar mun Þórhallur m.a. fara yfir hvernig við getum hrist af okkur stress, streitu og kvíða og séð hlutina í lausnum frekar en hindrunum, sömuleiðis deila því með okkur sem hefur heppnast vel á löngum ferli, hvers vegna starfsfólk ríkisins má vera stolt í sínum störfum o.fl.

Þórhallur hvetur ráðstefnugesti til að spyrja sig erfiðra og jafnvel persónulegra spurninga. Bæði verður boðið upp á það á staðnum en sömuleiðis má senda honum nafnlausar spurningar hér: Spurningar til Þórhalls Gunnarssonar

Gómsætar veitingar að hætti hússins eru innifaldar í ráðstefnugjaldi og sömuleiðis léttar veitingar í dagskrárlok.

Verð: 

  • Á staðnum – 20.900kr

  • Í streymi – 6.000kr

Smelltu hér til að skrá þig