Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. október 2025

Bólusett gegn inflúensu eftir miðjan október

Áformað er að hefja bólusetningar gegn inflúensu á heilsugæslustöðvum HSN eftir miðjan október.

Áformað er að hefja bólusetningar gegn inflúensu á heilsugæslustöðvum Heilbrigðisstofnun Norðurlands eftir miðjan október. Bóluefni er ekki komið til landsins og því ekki hægt að bjóða upp á bólusetningar fyrir þann tíma.

Þegar bólusetningar hefjast eftir miðjan október verður hægt að bóka tíma í bólusetningu á Mínum síðum á Heilsuveru eða með því að hringja í sína heilsugæslustöð. Sjá nánar fyrirkomulag á hverri starfsstöð á heimasíðu HSN.

Ekki verður boðið upp á bólusetningu gegn Covid samhliða bólusetningu gegn inflúensu samkvæmt tilmælum sóttvarnarlæknis.