2. september 2022
2. september 2022
Bólusetning gegn árlegri inflúensu
Inflúensubóluefni verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með 13. september nk.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/7Co8HvcszpVFdwajlN7TXl/bf95c987021a995d5de6243aaf12bfe6/B__lusetning_fullor__inna.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Bólusetningar](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/7Co8HvcszpVFdwajlN7TXl/bf95c987021a995d5de6243aaf12bfe6/B__lusetning_fullor__inna.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Inflúensubóluefni verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með 13. september nk. Bóluefni sem notað verður í bólusetningum veturinn 2022-2023 samkvæmt samningum sóttvarnalæknis við Vistor er:
Vaxigrip Tetra – 90.000 skammtar skv. samningi við útboð 2019 og viðaukasamningum 2021.
Ónotuðum skömmtum var fargað í vor og var því pantað minna bóluefni í ár en í fyrra.
Í ár verður dreifingu forgangsraðað til heilbrigðisstofnana og hjúkrunarheimila í september og þess er vænst að bólusetningar geti hafist um allt land 15. september en aðrir sem fá úthlutað bóluefni fá það væntanlega í október, þ.m.t. aðilar sem sinna vinnustaðabólusetningum.
Dreifing bóluefnis til aðila sem sinna bólusetningum miðast við það magn sem óskað var eftir eða pantað sl. vetur nema annað hafi komið fram í samskiptum sóttvarnalæknis við ábyrgðaraðila bólusetninga.
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Barnshafandi konur.
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
Sjá nánar Dreifibréf nr. 4/2022 um bólusetningu gegn árlegri inflúensu
Sóttvarnalæknir