Fara beint í efnið

10. maí 2022

Blönduósbær gerist Heilsueflandi samfélag

Blönduósbær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 6. maí sl.

Landlæknir logo

Blönduósbær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 6. maí sl. þegar Valdimar O. Hermansson bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í sal Blönduskóla. Þar er meðal annars sérstaklega tekið fram að það sé sameiginlegur vilji aðila að samningurinn gildi í framhaldinu fyrir sameinað sveitarfélag Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Viðstaddir voru meðal annars fulltrúar allra framboða til sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags og nemendur og starfsfólk Blönduskóla og leikskólans Barnabæjar. Blönduósbær hóf undirbúning þátttöku árið 2020 og því var sérstaklega ánægjulegt að aðstæður gerðu nú mögulegt að staðfesta samstarfið með formlegum hætti.  

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Starf Heilsueflandi leik-, grunn- og framhaldsskóla, Heilsueflandi vinnustaða og heilsuefling eldri borgara er mikilvægur liður í starfi Heilsueflandi samfélags. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög meðal annars að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Blönduósbær er 38. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú rúmlega 94,5% landsmanna í slíku samfélagi.

Nánar um Heilsueflandi samfélag.
Nánar um lýðheilsuvísa.
Nánar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Gígja Gunnarsdóttir
verkefnastjóri Heilsueflandi samfélags