Fara beint í efnið

26. apríl 2026

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Rannsóknasjóði fyrir styrkárið 2027

Umsóknarfrestur er 15. júní nk. klukkan 15:00.

Rannsóknasjóður er opinn samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja vísindarannsóknir og rannsóknartengt framhaldsnám. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn nemendur í rannsóknartengdu framhaldsnámi og skilgreind rannsóknarverkefni sem efla stöðu vísindastarfs á Íslandi.

Umsóknarfrestur er 15. júní nk. kl. 15:00.

Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér vel reglur Rannsóknasjóðs fyrir styrkárið 2027 áður en hafist er handa við gerð umsóknar.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís. Umsóknir og umsóknargögn skulu vera á ensku.

Sótt er um á Mínum síðum Rannís.

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsvæði Rannsóknasjóðs.