14. ágúst 2026
14. ágúst 2026
Auglýst eftir umsóknum í Íþróttasjóð 2027
Búið er að opna fyrir umsóknir í Íþróttasjóð vegna verkefna fyrir árið 2027.

Styrkir eru veittir til eftirfarandi verkefna:
Aðstaða: Sérstakra áhersla á viðfangefni sem styrkja umgjörð íþróttastarfs meðal barna og ungmenna.
Útbreiðslu- og fræðsluverkefna: Sérstök áhersla verður lögð á verkefni sem stuðla að eflingu faglegrar umgjarðar íþróttafélaga. Sérstaklega þá til verkefna sem snúa að jaðarsettum hópum í íþróttum.
Íþróttarannsókna.
Verkefna samkvæmt 13. gr. Íþróttalaga.
Umsóknarfrestur er til kl. 15.00 fimmtudaginn 1. október 2026.
Umsóknum skal skilað rafrænt. Aðgangur að umsóknarkerfi, eyðublöðum fyrir skýrslur, matskvarða, ásamt lögum og reglugerðum um sjóðinn o.fl., er að finna á síðu sjóðsins. Nota þarf rafræn skilríki við gerð umsóknar og eingöngu er tekið við rafrænum fylgigögnum.
Nánari upplýsingar um Íþróttasjóð.
Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson í netfang ithrottasjodur@rannis.is eða í GSM síma 699 2522