Fara beint í efnið

11. júní 2026

Ársskýrsla sóttvarna fyrir árið 2025

Sóttvarnalæknir hefur gefið út Ársskýrslu sóttvarna fyrir árið 2025.

Í skýrslunni er fjallað um faraldsfræði skráningar- og tilkynningarskyldra smitsjúkdóma á Íslandi auk bólusetninga og sýklalyfjaónæmis, sýkingar tengdar heilbrigðisþjónustu og aðrar heilsuógnir sem varða sóttvarnir. Skýrslan gefur yfirlit yfir stöðu sóttvarna og helstu breytingar frá fyrri árum.

Árið 2025 einkenndist ekki af einni heilsuógn heldur fremur af fjölbreyttum verkefnum sóttvarna. COVID-19 sjúkdómurinn veldur ekki sambærilegu álagi og áður en árleg inflúensa var áberandi um veturinn. Þróun kynsjúkdóma og berklatilfella á árinu undirstrikar jafnframt mikilvægi aðgengilegrar greiningar, smitrakningar, meðferðar og fræðslu.

Sóttvarnalæknir skipuleggur einnig almennar bólusetningar og er ábyrgur fyrir skráningu þeirra. Þá heldur sóttvarnalæknir skrá um notkun manna á sýklalyfjum sem valdið geta ónæmi sýkla gegn sýklalyfjum. Nánar er fjallað um þessi málefni í sérstökum árlegum skýrslum sem koma frá sóttvarnalækni síðar á árinu.

Á árinu 2025 var einnig unnið að því að efla innviði sóttvarna, meðal annars með bættri vöktun og rafrænum kerfum auk áframhaldandi undirbúnings vegna farsótta og annarra bráðra lýðheilsuógna.

Ársskýrsla sóttvarna er eingöngu gefin út í rafrænni útgáfu.

Sóttvarnalæknir