Fara beint í efnið

6. október 2023

Árlegar bólusetningar að hefjast

Árlegar bólusetningar við inflúensu og Covid-19 hefjast hjá HSN eftir miðjan október.

Bólusetningar

Boðið verður upp á bólusetningar við inflúensu og Covid-19 fyrir forgangshópa á heilsugæslustöðvum HSN eftir miðjan október.

Bólusett verður samtímis við inflúensu og Covid-19 á öllum heilsugæslustöðvum. Hægt verður að velja um að fá annað hvort eða bæði bóluefnin í sömu heimsókn.

Sóttvarnalæknir mælir með því að eftirtaldir áhættuhópar fái forgang við bólusetningar við Covid-19: 

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum eða eru ónæmisbæld af völdum lyfja eða sjúkdóma.

  • Barnshafandi konur.

  • Heilbrigðisstarfsfólk sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Nánari upplýsingar um bólusetningar gegn inflúensu og Covid-19.