Fara beint í efnið

Bólusetningar gegn Inflúensu og Covid 19

Boðið verður upp á bólusetningar við inflúensu og Covid-19 fyrir forgangshópa á heilsugæslustöðvum HSN frá miðjum október.

Bólusett verður samtímis við inflúensu og Covid-19 á öllum heilsugæslustöðvum. Hægt verður að velja um að fá annað hvort eða bæði bóluefnin í sömu heimsókn. Ef ástæða þykir til er hægt að fá bólusetningu við Covid-19 strax en þá er notast við eldri útgáfu af bóluefninu.

Nauðsynlegt er að bóka bólusetningu á heilsugæslustöðvum. Hægt er að bóka á tvo mismunandi vegu:

Sóttvarnalæknir mælir með því að eftirtaldir áhættuhópar fái forgang við bólusetningar við inflúensu og Covid-19: 

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, offitu, sykursýki, illkynja sjúkdómum eða eru ónæmisbæld af völdum lyfja eða sjúkdóma.

  • Barnshafandi konur.

  • Heilbrigðisstarfsfólk sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Bólusetning við Covid-19 og inflúensu er fólki í forgangshópum að kostnaðarlausu.

Nánar um bólusetningar gegn COVID-19 hjá Embætti landlæknis

Bólusetningar gegn Inflúensu og Covid 19