Fara beint í efnið

Heilsuvernd grunnskólabarna

Heilsuvernd grunnskólabarna er framhald af ung og smábarnavernd. Markmið heilsuverndar skólabarna er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra.

Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra/forráðamenn, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð nemenda að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.  

Starfsemi heilsuverndar skólabarna er skv. lögum, reglugerðum og tilmælum sem um hana gilda. Í henni felast heilsufarsskoðanir, bólusetningar og heilbrigðisfræðsla, ásamt ráðgjöf til nemenda, fjölskyldna þeirra og starfsfólks skólans.


Fagleg starfsemi  heilsuverndar skólabarna

  • Fyrsta stigs forvarnir;  heilbrigðisfræðsla, heilsuefling, ónæmisaðgerðir o.fl.

  • Annars stigs forvarnir;  skimanir og heilbrigðisþjónusta í skólum.

  • Þriðja stigs forvarnir;  aðbúnaður og umönnun barna með langvinnan heilsuvanda o.fl.


Nánari upplýsingar um framkvæmd heilsuverndar er á vef Heilsuveru.

Sjá kynningarmynd um skólahjúkrun hjá HSN