Fara beint í efnið

1. desember 2022

Alþjóðlegi HIV/alnæmisdagurinn

Alþjóðlegi HIV/alnæmisdagurinn er 1. desember árlega. Í tilefni dagsins minnum við á að HIV er mikilvægt lýðheilsumál sem hefur áhrif á heilsu og vellíðan milljóna manna um allan heim. Tilgangur dagsins er einnig að sýna samstöðu með þeim sem eru smitaðir.

Landlæknir logo

Alþjóðlegi HIV/alnæmisdagurinn er 1. desember árlega. Í tilefni dagsins minnum við á að HIV er mikilvægt lýðheilsumál sem hefur áhrif á heilsu og vellíðan milljóna manna um allan heim. Tilgangur dagsins er einnig að sýna samstöðu með þeim sem eru smitaðir. Rúmlega 38 milljónir manna eru smitaðir af HIV í heiminum og þar af tæplega 2 milljónir barna.

Á síðasta ári greindust um 300 ný smit á dag í Evrópu, þar af um 45 manns á dag á ESB/EES svæðinu. Hins vegar er talið að 1 af hverjum 8 einstaklingum með HIV smit á ESB/EES svæðinu sé ógreindur.

Hvatt er til þess að fólk ræði opinskátt um HIV og fari í HIV-próf á næstu heilsugæslustöð ef ástæða er til. Snemmgreining og rétt meðferð kemur í veg fyrir að sjúkdómurinn þróist og eykur mjög líkur á eðlilegu lífi auk þess að draga verulega úr líkum á því að smit berist á milli manna.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) leggur áherslu á að binda endi á vaxandi ójöfnuð og skerðingu á heilbrigðisþjónustu HIV-smitaðra einstaklinga. Án meðferðar leiðir HIV-smit að lokum til alnæmis sem er banvænn sjúkdómur.

Árið 2021 greindist 21 einstaklingur með HIV á Íslandi. Þar af voru 15 karlar (71%) og sex konur. Flestir sem greindust á árinu eða 11 talsins smituðust vegna kynmaka samkynhneigðra, sjö vegna kynmaka gagnkynhneigðra og einn vegna neyslu fíkniefna í æð. Ekki er vitað með vissu um smitleiðir tveggja einstaklinga. Af þeim sem greindust á árinu höfðu 16 (76%) erlent ríkisfang. Tveir karlmenn greindust með alnæmi árið 2021 en engin kona. Ekkert andlát varð vegna alnæmis á Íslandi á árinu.

Á Íslandi hafa HIV smitaðir almennt gott aðgengi að meðferð og umönnun sem gerir þeim kleift að lifa nánast eðlilegu lífi.

Fjöldi HIV greininga á Íslandi frá upphafi til og með 2021, greint eftir aldri og kyni

Sóttvarnalæknir