15. mars 2023
15. mars 2023
Alþjóðadagur hamingju 2023
Í tilefni af alþjóða hamingjudeginum þann 20. mars nk. fer fram málþingið Hamingja og sjálfbær velsæld í hátíðarsal Háskóla Íslands.
Málþingið er samstarfsverkefni embættis landlæknis, forsætisráðuneytisins, Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Endurmenntunar Háskóla Íslands.
Dagskrá málþingsins er fjölbreytt þar sem fulltrúar samstarfsaðila munu taka til máls ásamt Vanessu King, sérfræðings í jákvæðri sálfræði hjá Action for Happiness. Þá verður skýrsla um hamingju þjóða í heiminum „World Happiness Report 2023“ einnig kynnt en skýrslan kemur út árlega þennan dag. Þar er að finna niðurstöður könnunar á hamingju meðal þjóða heimsins, þar sem Ísland hefur verið meðal efstu landa sl. ár. Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:
13:00 Ávarp
13:15 Hamingja og velsæld
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá embætti landlæknis og kennslustjóri diplómanáms í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun HÍ.13:35 Alþjóðlegi hamingjudagurinn og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
Vala Karen Viðarsdóttir framkvæmdarstjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi13:45 Action for Happiness at work and in the community
Vanessa King, Positive Psychology expert at Action for Happiness14:30 Kaffihlé
14:50 Hamingjan á hjólastígum höfuðborgarinnar
Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur15:10 Sjálfbært Ísland
Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu15:30 Pallborðsumræður
16:00 Málþingslok
Málþingið er opið öllum á meðan húsrúm leyfir og verður einnig í streymi. Nánari upplýsingar er að finna í viðburði á Facebook.
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
Sviðsstjóri lýðheilsusviðs