Fara beint í efnið

10. ágúst 2026

Almyrkvi á sólu 2026

Himintunglin stíga einstakan dans 12. ágúst 2026 þegar almyrkvi verður á sólu. Til að njóta sjónarspilsins á öruggan hátt þarf að huga að ýmsu.

Nauðsynlegt er að nota örugg sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með sólmyrkvanum. Mikilvægt er að ganga úr skugga um að gleraugun uppfylli EN ISO 12312-2:2015 staðalinn og beri CE-merkingu. Ekki á að nota venjuleg sólgleraugu og ekki skal horfa beint í sólina án sólmyrkvagleraugna eða í gegnum myndavélalinsur, kíki eða snjallsíma án viðurkenndra varna (filter, sólmyrkvagleraugu).

Þegar fylgst er með sólmyrkva eða almyrkva er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga:

  • Minnkandi birtustig er blekkjandi og getur leitt til þess að fólk gleymi að verja augun.

  • Þegar almyrkvi á sér stað þarf að taka af sér sólmyrkvagleraugun til að sjá hina eiginlegu sólkórónu. Þetta augnablik þar sem óhætt er að horfa berum augum á sólmyrkvann varir í u.þ.b. 2 mín vestast á landinu og um 1 mín á höfuðborgarsvæðinu.

  • Það þarf að setja á sig gleraugun um leið og sólin fer að ná í gegn á ný.

  • Allir sem eru utan almyrkvasvæðis (restin af landinu) þurfa að vera með sólmyrkvagleraugu allan tímann.

Foreldrar og forráðamenn þurfa sérstaklega að huga að börnum og þeim sem ekki hafa þroska til að skilja mikilvægi og nauðsyn þess að setja sólmyrkvagleraugun upp þegar almyrkva lýkur. Þessir einstaklingar eru í sérstakri hættu á að verða fyrir augnskaða.

Sjónhimnan getur orðið fyrir varanlegum skaða á nokkrum sekúndum ef horft er beint í sólina. Einkenni geta komið fram nokkrum klukkustundum síðar, sem minnkuð sjón, blindur blettur eða blinda.

Um ljósskaða og fyrstu viðbrögð

Helstu einkenni ljósskaða á sjónhimnunni eru meðal annars minnkuð eða brengluð sjón, breytt litasýn, móðusýn, minnkuð skerpa, blindur blettur eða blinda. Önnur einkenni geta fylgt, þar á meðal höfuðverkur og ljósnæmi.

Þegar grunur leikur á að augu hafi orðið fyrir ljósskaða er mikilvægt að hvíla augun. Fyrsta ráðið er að hætta að horfa í sólina. Síðan er skynsamlegt að forðast skæra birtu og sterk ljós og jafnvel hvíla augun með því að setja upp sólgleraugu.

Gott er að hafa í huga að engir sársaukaviðtakar eru í sjónhimnunni. Verkjalyf hjálpa því ekki. Að auki er engin sértæk meðferð til við ljósskaða á sjónhimnunni.

Einkenni vegna ljósskaða geta gengið til baka en geta einnig verið óafturkræf. Ef grunur er um skaða á sjón er mikilvægt að hafa samband við heilsugæslu eða augnlækni til að fá ráð og láta meta hugsanlegan skaða.

Upplýsingasíða um almyrkva á sólu

Embætti landlæknis minnir á upplýsingasíðu stjórnvalda um almyrkva á sólu 2026. Þar er að finna margvíslegan fróðleik um þennan einstaka atburð.

Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is