Fara beint í efnið

10. janúar 2023

Aðgerðir í ESB/EES-ríkjum vegna COVID-19 útbreiðslu í Kína

Þann 4. janúar sl. gaf leiðtogaráð Evrópusambandsins (ESB) út tilmæli til aðildarríkja vegna COVID-19 þróunarinnar í Kína, sérstaklega með tilliti til áreiðanleika gagna frá Kína og tilslökunar á ferðatakmörkunum í Kína frá og með 8. janúar.

Embætti landlæknis - logo-ISL-SVL-litid

Tilmælin voru að:

  • Mæla með því við farþega í flugi til og frá Kína að nota veiruhelda andlitsgrímu (FFP2/N95/KN95).

  • Ferðamenn sem koma frá eða eru á leið til Kína, svo og áhafnir og flugvallastarfsmenn skuli minntir á persónulegar sóttvarnir.

  • Hvetja til framvísunar neikvæðs COVID-19 prófs, teknu ekki meira en 48 klukkustundum fyrir brottför frá Kína, fyrir ferðamenn frá Kína sem koma til Evrópu.

Aðildarríkin voru enn fremur hvött til að bæta eftirfarandi ráðstöfunum við:

  • COVID-19 próf á farþegum sem koma frá Kína við komuna til aðildarríkja, eftir því sem við á, og raðgreining á jákvæðum niðurstöðum.

  • Prófa og raðgreina sýni frá skólpi flugvéla sem koma frá Kína og flugvöllum þar sem koma vélar frá Kína.

  • Aðildarríki hvetji áfram til bólusetningar, þar með talið örvunarskammta, sérstaklega meðal viðkvæmra hópa.

ESB, með stuðningi Sóttvarnastofnunnar Evrópu (ECDC) mun áfram fylgjast með faraldsfræðilegu ástandi COVID-19 á ESB/EES-svæði sem og þróuninni í Kína og samræma aðgerðir sem taldar eru nauðsynlegar. Ástand faraldursins og ofangreindar aðgerðir verða endurmetnar miðjan janúar 2023.

Nokkur lönd innan ESB (Ítalía, Frakkland, Spánn, Svíþjóð, Þýskaland, Holland, Grikkland, Austurríki, Belgía) auk Bretlands krefja nú farþega frá Kína um neikvætt COVID-19 próf, auk landa utan Evrópu (m.a. Bandaríkin, Ástralía, Kanada, Chile, Indland, Japan). Einhver lönd skima einnig farþega eða eru að íhuga slíka ráðstöfun.

Í samræmi við ofangreint hefur sóttvarnalæknir uppfært leiðbeiningar til ferðamanna, hvernig á að leita heilbrigðisþjónustu á Íslandi og gefið út sérstakar leiðbeiningar til farþega sem koma frá Kína til Evrópu. Leiðbeiningarnar eru á íslenskuensku og kínversku. Engin bein flug eru milli Íslands og Kína og eins og er þá þykir ekki ástæða til að grípa til annarra sérstakra aðgerða á landamærum hérlendis vegna ástandsins í Kína.

Sóttvarnalæknir

Sjá einnig: