Fara beint í efnið

5. febrúar 2021

Úthlutun úr Lýðheilsusjóði 2021

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, úthlutaði í dag rúmum 85 milljónum í styrki úr Lýðheilsusjóði til 174 verkefna og rannsókna. Styrkt voru fjölbreytt verkefni um land allt, ætluð öllum aldurshópum.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, úthlutaði í dag rúmum 85 milljónum í styrki úr Lýðheilsusjóði til 174 verkefna og rannsókna. Styrkt voru fjölbreytt verkefni um land allt, ætluð öllum aldurshópum.

Áhersla er lögð á að styrkja aðgerðir sem miða m.a. að því að efla geðheilsu barna og fullorðinna og efla félagsfærni ásamt því að draga úr einmanaleika. Einnig var áhersla á áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir, næringu, hreyfingu og kynheilbrigði. Við mat á umsóknum fyrir árið 2021 var einnig sérstaklega horft til verkefna sem styðja við minnihlutahópa, stuðla að jöfnuði til heilsu og tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.

Við úthlutun var tekið mið af eftirfarandi stefnum:

Ráðherra úthlutaði styrkjunum að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs sem mat umsóknir út frá því hvernig þær falla að hlutverki sjóðsins. Áður höfðu fagráð embættis landlæknis metið allar umsóknir sem bárust. Hlutverk Lýðheilsusjóðs er skilgreint í lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 og lýðheilsustefnu heilbrigðisráðuneytisins.

Vegna Covid-19 verður ekki formleg opinber athöfn í ár.