Fara beint í efnið

20. ágúst 2019

Sveitarfélagið Vogar gerist Heilsueflandi samfélag

Sveitarfélagið Vogar varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 14. ágúst sl. þegar Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í Aragerði, Vogum. Viðstaddir voru fulltrúar bæjarfélagsins og hópur ungmenna af svæðinu.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Sveitarfélagið Vogar varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 14. ágúst sl. þegar Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í Aragerði, Vogum. Viðstaddir voru fulltrúar bæjarfélagsins og hópur ungmenna af svæðinu.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Vogar eru 27. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú um 88% landsmanna í slíku samfélagi.

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags