Fara beint í efnið

21. maí 2019

Sveitarfélagið Árborg gerist Heilsueflandi samfélag

Sveitarfélagið Árborg varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) mánudaginn 20. maí sl. þegar Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis. Árborg er 24. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú um 86,3% landsmanna í slíku samfélagi.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Sveitarfélagið Árborg varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) mánudaginn 20. maí sl. þegar Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í Hleðsluhöllinni (íþróttahúsinu Iðu) á Selfossi. Viðstaddir voru m.a. bæjarfulltrúar, fulltrúar í stýrihópi Árborgar fyrir HSAM starfið og iðkendur í 4. flokki Umf. Selfoss í handbolta.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Sveitarfélagið Árborg er 24. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú um 86,3% landsmanna í slíku samfélagi.

Nánar um Heilsueflandi samfélag

Nánar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags