Fara beint í efnið

16. september 2020

Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2021

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Lýðheilsusjóð 2021 og er frestur til að sækja um styrki til 15. október 2020.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Lýðheilsusjóð 2021 og er frestur til að sækja um styrki til 15. október 2020. Í ár er lögð áhersla á eftirfarandi:

  • Aðgerðir sem miða að því að efla geðheilsu.

  • Aðgerðir til að efla félagsfærni og draga úr einmanaleika.

  • Aðgerðir sem miða að heilbrigðu mataræði, svefni og hreyfingu.

  • Áfengis, vímu- og tóbaksvarnir.

  • Verkefni sem tengjast kynheilbrigði.

  • Verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu.

Við úthlutun verður tekið mið af eftirfarandi stefnum stjórnvalda:

Verkefni sem uppfylla eftirtalin skilyrði hafa forgang:

  • Verkefni sem unnin eru í víðtæku samstarfi hagsmunaaðila.

  • Verkefni sem eru með eigin fjármögnun eða aðra fjármögnun.

  • Verkefni sem byggja á faglegum grunni og hafa raunhæf og skýr markmið.

Umsækjendur eru hvattir til þess að sækja um tímanlega þar sem álag á kerfið er mikið síðustu dagana áður en umsóknarfresti lýkur. Þá er einnig mikilvægt að gefa sér nægan tíma til þess að ganga frá umsókn þannig að allar upplýsingar og fylgiskjöl séu til staðar.

Gera þarf grein fyrir því hvernig árangur verkefnis verður metinn, hvernig fjármagni er varið og skila skal framvinduskýrslu að verkefni loknu.

Sótt er um á vefsvæði Lýðheilsusjóðs 

Sjá nánar um lýðheilsusjóð.