17. desember 2019
17. desember 2019
Staða á biðlistum eftir völdum skurðaðgerðum í október 2019
Embætti landlæknis kallar reglulega eftir gögnum varðandi bið eftir völdum skurðaðgerðum í samræmi við eftirlitshlutverk sitt. Í greinargerð sem hér birtist er fjallað um bið í völdum aðgerðaflokkum en ítarleg umfjöllun um liðskiptaaðgerðir verður birt síðar.

Viðmiðunarmörk embættis landlæknis um ásættanlegan biðtíma eftir aðgerð eru 90 dagar (3 mánuðir) og er miðað við að 80% komist í aðgerð innan þess tíma.
Helstu niðurstöður:
Biðlistaátak sem hófst árið 2016 hefur skilað miklum árangri í að stytta bið eftir skurðaðgerð á augasteini en að mati embættis landlæknis er þörf á að halda áfram svipuðum aðgerðafjölda svo biðlistar lengist ekki að nýju.
Skurðaðgerðum á maga vegna offitu hefur fjölgað en aðgerðafjöldinn heldur ekki í við aukna eftirspurn svo biðtími hefur lengst mikið.
Bið eftir kvenaðgerðum styttist eftir að biðlistaátak hófst í þessum flokki árið 2017 en heildarbiðtími í þessum flokki er of langur.
Fjölgað hefur á biðlistum eftir brjóstnámi og úrnámi hluta brjósts.
Að mati embættis landlæknis er þörf á að fjölga _brennsluaðgerðum á hjart_a verulega.
Fyrirspurnum vegna greinargerðarinnar skal beina til
Kjartans Hreins Njálssonar, aðstoðarmanns landlæknis
netfang: kjartanh@landlaeknir.is, sími 510-1900.