Fara beint í efnið

23. janúar 2020

Sóttvarnalæknir fylgist náið með sjúkdómi af völdum hinnar nýju kórónaveiru í Wuhan, Kína.

Sóttvarnalæknir fylgist náið með upplýsingum um sjúkdóminn af völdum hinnar nýju kórónaveiru frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC).

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Sóttvarnalæknir fylgist náið með upplýsingum um sjúkdóminn af völdum hinnar nýju kórónaveiru frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) og Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins (ECDC). Margt er enn óljóst varðandi sjúkdóminn af völdum þessarar veiru en eftirfarandi er þó vitað með vissu:

  • Uppruni veirunnar virðist einkum vera í Wuhan borg í Kína og þá aðallega á ákveðnum matarmarkaði í borginni. Rannsóknir standa nú yfir í Kína hvort veiruna megi einnig finna á öðrum stöðum.

  • Þeir einstaklingar sem greinst hafa með þessa nýju veiru hafa nánast allir komið frá Wuhan borg. Þeir hafa ýmist ferðast til annarra staða í Kína, til annarra landa í Asíu eða til annarra landa utan Asíu.

  • Smit á milli einstaklinga hefur verið staðfest en virðist enn sem komið er ekki vera algengt.

  • Enginn einstaklingur hefur enn sem komið er greinst í Evrópu en veiran hefur greinst í Bandaríkjunum hjá einstaklingi sem kom frá Wuhan borg.

  • Sýkingin hefur nú verið staðfest hjá um 600 einstaklingum en að öllum líkindum er fjöldi sýktra verulega meiri.

  • Í dag, 23. janúar 2020, hafa 17 einstaklingar látist af völdum veirunnar en allir voru með undirliggjandi sjúkdóma.

  • Kínverjar hafa gripið til róttækra aðgerða í því skyni að stöðva útbreiðslu faraldursins eins og samgöngu- og samkomubanns sem vonandi mun hefta útbreiðsluna.

Í dag (23. janúar) er áhættumat ECDC á þessari nýju veiru eftirfarandi:

  • Líklegt er að veiran geti borist til Evrópu, sérstaklega til landa/svæða sem eru með beinar flugsamgöngur til Wuhan borgar í Kína.

  • Frekari dreifing innan landa Evrópu er ólíkleg, sérstaklega ef einstaklingar greinast fljótt og viðeigandi einangrun er beitt.

  • Veiran virðist ekki valda jafn skæðum sjúkdómi og SARS veiran gerði 2002 en þá létust um 10% af þeim sem sýktust.

Hvað er verið að gera á Íslandi?

Opinber viðbrögð á Íslandi munu miðast við alvarleika hinnar nýju veiru í ljósi nýrra áreiðanlegra upplýsinga.

  • Undirbúningur á Íslandi er samkvæmt viðbragðsáætlunum sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Í því felst að leiðbeiningar og áætlanir frá SARS-faraldrinum 2002 verða uppfærðar og viðbragðsaðilar upplýstir.

  • Leiðbeiningar til heilbrigðisstarfsmanna verða uppfærðar og gefnar út.

  • Gefnar verða út leiðbeiningar til almennings um hvernig eigi að nálgast heilbrigðiskerfið ef grunur vaknar um sýkingu af völdum hinnar nýju veiru.

  • Leiðbeiningar verða gefnar til ferðamanna um viðbrögð heilbrigðisyfirvalda á Íslandi og hvernig ferðamenn geti nálgast heilbrigðiskerfið hér á landi.

  • Á alþjóðlegum flugvöllum landsins verður unnið samkvæmt landsáætlun um sóttvarnir flugvalla.

  • Heilbrigðisstofnanir verða hvattar til að uppfæra sínar viðbragðsáætlanir.

  • Ekki er ástæða til að hvetja til ferðabanns til Kína en ferðamenn eru hvattir til huga vel að sýkingavörnum.

  • Ekki er ástæða til að skima farþega á flugvöllum hér á landi.

Sóttvarnalæknir mun birta nýjar og mikilvægar upplýsingar á heimasíðu embættis landlæknis eins og þurfa þykir.

Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hreinn Njálsson aðstoðarmaður landlæknis í síma 663-3624 eða netfangi kjartanh@landlaeknir.is

Sóttvarnalæknir