14. júlí 2023
14. júlí 2023
Tilboðsmarkaður með sumargotssíld
Skiptimarkaður með aflamark í sumargotssíld er opinn frá 16:00 13. júlí til 14:00 18. júlí 2023.
Við mat á tilboðum er stuðst við meðalverð alfamarks síðastas mánaðar sem er fyrir þorsk 448,04 kr/kg.Tilboð er sent í gegnum UGGA. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Staðfesting er send sjálfkrafa um móttöku tilboðs. Umsækjendur geta afturkallað/hætt við tilboð en tekið er fram að afturköllun á tilboði eftir tilboðsfrest er óheimil.
Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.
Hver úthlutun aflaheimilda kostar 14.000 kr. samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.
Vinsamlega kynnið ykkur reglur um skiptimarkað.