Fara beint í efnið

22. ágúst 2019

Skagafjörður gerist Heilsueflandi samfélag

Sveitarfélagið Skagafjörður varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 15. ágúst sl. þegar Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í Miðgarði, Varmahlíð.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Sveitarfélagið Skagafjörður varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 15. ágúst sl. þegar Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í Miðgarði, Varmahlíð.

Athöfnin fór fram í tengslum við fræðsludag Skagafjarðar og var starfsfólk allra skólastiga á svæðinu viðstatt ásamt fleirum, alls um 250 manns.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Skagafjörður er 28. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú um 90% landsmanna í slíku samfélagi.

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags