Fara beint í efnið

26. október 2018

Seltjarnarnesbær gerist Heilsueflandi samfélag

Seltjarnarnesbær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi þann 24. október síðastliðinn þegar Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í húsnæði Vivaldi vallarins.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Seltjarnarnesbær varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi þann 24. október síðastliðinn þegar Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í húsnæði Vivaldi vallarins. Viðstaddir voru m.a. bæjarfulltrúar og aðrir lykilhagsmunaaðilar sem munu koma að starfinu.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum.

Alma D. Möller landlæknir og Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar

Með Seltjarnarnesbæ eru 23 sveitarfélög aðilar að Heilsueflandi samfélagi og skuldbinda sig þannig til að efla heilsu og vellíðan íbúa sinna með markvissum hætti. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig að innleiðingu Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Nánar um Heilsueflandi samfélag

Nánar um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Gígja Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags