Fara beint í efnið

16. ágúst 2019

Samstarf um Heilsueflandi samfélag á Suðurnesjum

Miðvikudaginn 14. ágúst undirrituðu bæjarstjórar Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Grindavíkurbæjar og Voga ásamt forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og landlækni viljayfirlýsingu um að starfa saman að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) á Suðurnesjum.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Miðvikudaginn 14. ágúst undirrituðu bæjarstjórar Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Grindavíkurbæjar og Voga ásamt forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og landlækni viljayfirlýsingu um að starfa saman að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) á Suðurnesjum. Athöfnin fór fram í húsnæði Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Mikil fólksfjölgun hefur verið á Suðurnesjum undanfarin ár. Svæðið stendur vel hvað varðar ýmsa þætti sem hafa áhrif á vellíðan íbúa en samkvæmt m.a. Lýðheilsuvísum 2019 eru sóknarfæri til að gera betur.

Í samræmi við meginmarkmið HSAM er tilgangur samstarfsins að greina með markvissum hætti stöðuna og sameinast um að leita lausna sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa á Suðurnesjum.

Suðurnesin eru fyrsta svæðið sem ákveður að starfa saman að Heilsueflandi samfélagi með þessum hætti. Samstarfið mun meðal annars nýtast við undirbúning Sóknaráætlunar Suðurnesja 2020-24.