Fara beint í efnið

30. júní 2020

Rangárþing ytra gerist Heilsueflandi samfélag

Rangárþing ytra varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 25. júní sl. þegar Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í húsakynnum sveitarfélagsins á Hellu.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Rangárþing ytra varð formlega aðili að Heilsueflandi samfélagi (HSAM) þann 25. júní sl. þegar Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri og Alma D. Möller landlæknir undirrituðu samning þess efnis í húsakynnum sveitarfélagsins á Hellu.

Viðstaddir voru m.a. kjörnir fulltrúar, starfsfólk sveitarfélagsins og fulltrúar ungu kynslóðarinnar. Listasmiðja vinnuskólans og leikskólabörn frá Heklukoti sungu fyrir gesti. Í framhaldinu voru tekin upp erindi til að miðla áfram til íbúa. Annars vegar sagði Björk Grétarsdóttir oddviti frá því starfi sem þegar hefur farið fram og er framundan auk þess sem landlæknir kynnti Heilsueflandi samfélag.

Meginmarkmið Heilsueflandi samfélags er að styðja samfélög í að vinna með markvissum hætti að því að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Í slíku samfélagi er heilsa og líðan íbúa í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Starf Heilsueflandi leik-, grunn- og framhaldsskóla sem og Heilsueflandi vinnustaða er mikilvægur liður í og styður við starf Heilsueflandi samfélags. Með innleiðingu Heilsueflandi samfélags vinna sveitarfélög einnig m.a. að innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.

Rangárþing ytra er 32. sveitarfélagið sem gerist Heilsueflandi samfélag og búa nú 93,2% landsmanna í slíku samfélagi.

Nánar um Heilsueflandi samfélag

Nánar um lýðheilsuvísa

Nánar um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna