29. janúar 2020
29. janúar 2020
Ráðleggingar til ferðamanna - Kórónaveira 2019-nCoV
Sóttvarnalæknir mælir með að ferðamenn sleppi ónauðsynlegum ferðalögum til Kína, þar sem faraldur nýrrar kórónaveiru 2019-nCoV er í gangi. Ekki er vitað til að faraldur hafi farið af stað annarsstaðar en í Kína.

Sóttvarnalæknir hvetur einstaklinga á ferðalögum erlendis, sérstaklega þá sem eru í Kína og annarsstaðar þar sem sýkingar af völdum 2019-nCoV hafa verið staðfestar að:
Fylgjast vel með ferðatakmörkunum sem Kínverjar hafa gert innanlands og aðlaga ferðaáætlanir eins og þurfa þykir.
Gæta vel að almennu hreinlæti, sérstaklega handþvotti.
Forðast náið samneyti við einstaklinga sem eru með almenn kvefeinkenni/hósta.
Forðast samneyti við villt dýr eða dýr á almennum mörkuðum.
Nota klút fyrir vit við hnerra þegar um kvefeinkenni og/eða hósta er að ræða og þvo hendur reglulega.
Einstaklingar sem hafa verið í Kína og snúa heim eru hvattir til að halda sig heima í 14 daga eftir að þeir hafa yfirgefið Kína, sjá leiðbeiningar til einstaklinga í sóttkví. Ef þeir fá einkenni frá öndunarfærum, sérstaklega með hita, er rétt að hafa samband við heilbrigðisþjónustuna.